Enski boltinn

Andar léttar: Skil­orðs­bundið bann fyrir njósnirnar

Valur Páll Eiríksson skrifar
Eckert slapp við bann.
Eckert slapp við bann. Getty

Tonda Eckert, þjálfari Southampton, hefur verið dæmdur í sex vikna skilorðsbundið bann og 28 þúsund punda sekt fyrir njósnir um æfingar Middlesbrough í vor. Southampton var vísað úr umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni vegna málsins.

Spygate-málið svokallaða vakti mikla athygli síðasta vor en lærlingur hjá Southampton var sendur á vettvang á æfingasvæði Middlesbrough, í aðdraganda undanúrslitaleiks liðanna í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni, til að njósna um andstæðinginn.

Sá var gripinn glóðvolgur, kvörtun send til enska knattspyrnusambandsins og Southampton í kjölfarið rekið úr umspilinu. Hull City vann Middlesbrough í úrslitaleik umspilsins og fór þar af leiðandi í efstu deild.

Eckert var kærður af enska knattspyrnusambandinu vegna málsins í sumar. Kæran var vegna njósna ekki aðeins um Middlesbrough heldur tvö lið til viðbótar á meðan tímabilinu stóð.

Eckert játaði sök og Southampton var auk brottreksturs vorsins gert að hefja yfirstandandi leiktíð með fjögur stig í mínus.

Southampton hefur staðið fast við bakið á Eckert í gegnum málaferlin og stjórnarmenn þar á bæ anda léttar í dag. Eckert sleppur alfarið við bann, fær sex vikna skilorðsbundinn dóm og 28 þúsund punda sekt, sem nemur rúmlega 4,5 milljónum króna.

Southampton er með tíu stig í 13. sæti ensku B-deildarinnar og væri í fjórða sæti með 14 stig ef ekki væri fyrir mínusstigin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×