Magnað myndband frá Úlfi úlfi 12. janúar 2012 11:30
Hljómsveitin Úlfur úlfur sendi í vikunni frá sér magnað myndband við lagið Á meðan ég er ungur. Illusion kvikmyndagerðin vann myndbandið sem Arró leikstýrir. Myndbandið hefur fengið góðar viðtökur og nokkur þúsund manns hafa þegar horft á það á vefsíðunni Youtube. Arnar segir strákana hjá strákana hjá Illusion hafa haft frjálsar hendur og er gríðarlega ánægður með útkomuna. „Við sem hljómsveit komum mjög lítið nálægt þessu myndbandi. Þessi Illusion-hópur fékk leyfi hjá okkur til að gera þetta frjálslega,“ segir hann og bætir við að þeir félagar í hljómsveitinni séu í litlum hlutverkum í myndbandinu og að einn af þeim, Helgi Sæmundur Kaldalón, hafi hreinlega verið klipptur út. „Þeir fengu að leika lausum hala og gerðu það vel,“ segir Arnar. „Ég sá myndbandið í fyrsta skipti í frumsýningarpartíinu. Ég átti von á góðu, en þetta kom skemmtilega á óvart.“ -afb
Harmageddon Mest lesið Fimm verstu handboltarokklögin Harmageddon Þið sem hélduð að geitungar væru andstyggilegir Harmageddon Sannleikurinn: Elsta systkinið mest óþolandi Harmageddon Einn afkastamesti lagahöfundur okkar tíma Harmageddon Arcade Fire á toppi breska breiðskífulistans Harmageddon Stefán Jón vill bæta lífskjör starfsmanna RÚV Harmageddon Stúdentar sólgnir í ölið Harmageddon Stelpur lenda illa í netdólgum á Snapchat Harmageddon Prins Póló á toppi Pepsi Max lista X977 Harmageddon „Listamenn eru ekki að græða neitt“ Harmageddon