Öryggi áhorfenda í myrkum sal ógnað Sesselja G. Magnúsdóttir skrifar 14. febrúar 2012 08:00 Íslenski dansflokkurinn. Mínus 16 eftir Ohad Naharin.
Dans. Großstadtsafari / Mínus 16. Jo Strömgren / Ohad Naharin. Íslenski dansflokkurinn í Borgarleikhúsinu. Vorsýning Íslenska dansflokksins samanstóð af tveimur verkum: Großstadtsafari eftir Jo Strömgren og Mínus 16 eftir ísraelska danshöfundinn Ohad Naharin. Bæði verkin einkenndust af svarta litnum, kröftugum dansi og áherslu á fjölmennar senur en að öðru leyti voru þau ólík. Großstadtsafari er stílhreint og fallegt verk sem auðvelt er að njóta. Mínus 16 var aftur á móti mjög listrænt ögrandi og hélt áhorfandanum á tánum allan tímann því aldrei var hægt að vita hvað gerðist næst. Großstadtsafari var fyrra verkið á sýningunni. Það var frumsýnt af Íslenska dansflokknum 4. mars 2011 og því hér í endurflutningi. Það var ekkert nema gott um það að segja að sjá það verk að nýju því gott dansverk rétt eins og góð bók eða bíómynd er hægt að horfa á aftur og aftur án þess að það missi töfrana. Eftir hlé var síðan frumsýning á verkinu Mínus 16. Það var mikil eftirvænting eftir að sjá það verk vegna þess að Ohad Naharin hefur getið sér gott orð á alþjóðavettvangi fyrir danssköpun sína. Verkið bar þess greinilega merki að hér var á ferðinni firnafær danshöfundur, reyndar svo mjög að í lokin var svekkjandi að verkið skyldi ekki vera lengra. Höfundurinn notaði endurtekningar á mjög áhrifaríkan hátt og skapaði meðal annars ótrúlega magnaða stemningu í flutningi ísraelsks þjóðlags í hreyfingum og söng. Andstæður voru áberandi í danssköpuninni sem kom mjög vel út. Þannig varð undurfallegur dúett skemmtilegt uppbrot í annars orkumikilli framsetningu og þó að danshöfundurinn byði upp á fjölbreyttan hreyfiforða og tónlist var framsetningin alltaf skýr. Dansverkið var gamansamt og kraftmikið. Það var einnig mjög ögrandi fyrir áhorfendur því framvinda og framsetning þess braut oft í bága við hefðbundnar siðavenjur leikhússins. Öryggi áhorfendanna í myrkum sal leikhússins var ógnað þar sem dansararnir virtu fjórða vegginn að vettugi og ró þeirra var trufluð með óljósum endi og óútreiknanlegri framvindu verksins. Verkið sem samsett var úr nokkrum ólíkum atriðum var mjög brotakennt en hélt engu að síður athygli áhorfandans óskiptri allan tímann. Það olli uppnámi en á góðlátlegan hátt. Eitt af því skemmtilega við bæði dansverkin var hvað margir dansarar voru á sviðinu. Hópatriðin voru nákvæm og jöfn hvað varðar tímasetningar og orku og gaman að sjá hversu vel flokkurinn var samstilltur. Dansararnir höfðu síðan sín hlutverk innan heildarinnar og dönsuðu stundum færri í einu en í heildina litið var það frammistaða flokksins sem heildar sem vakti athygli. Niðurstaða:Mínus 16 var ögrandi en skondið verk sem vekur upp löngun í meira. Það skemmdi síðan ekki kvöldið að fá að sjá Großstadtsafari enn á ný.
Mest lesið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Lífið Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Tónlist „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Fleiri fréttir Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira