Spila í Japan í páskafríinu 5. mars 2012 10:00 Systurnar Jófríður og Ásthildur Ákadætur spila í Japan í páskafríinu sínu. fréttablaðið/hag „
Þetta verður mjög spennandi,“ segir Jófríður Ákadóttir úr Pascal Pinon. Hljómsveitin, sem er skipuð systrunum Jófríði og Ásthildi, fer í sína fyrstu tónleikaferð til Japans í lok mars. Það er Sumire Taya, eigandi verslunarinnar Violet and Claire í Japan, sem skipuleggur ferðalagið Hún hefur selt í búð sinni og dreift fyrstu plötu Pascal Pinon þar í landi. „Við fórum til Kína síðasta haust. Hún Sumire er að dreifa plötunni í Japan og hún vildi fá okkur til að fljúga frá Kína til Japans en það var ekki hægt út af skólanum. Hún bauðst til að skipuleggja annan túr í páskafríinu okkar [frá MH] og þessar dagsetningar hentuðu okkur rosa vel,“ segir Jófríður. „Hún sagði að það væri mikil stemning fyrir þessari hljómsveit í Japan.“ Sumire Taya borgar sjálf flugið fyrir hljómsveitina til Japans. Í staðinn gefur hún út þriggja laga smáskífu í Japan með hljómsveitinni og vonast til að fjármagna ferðalagið þannig. Á skífunni verða tvö ný lög og eitt gamalt í nýjum búningi. Pascal Pinon hlaut 1,2 milljóna styrk frá tónlistarsjóðnum Kraumi í fyrra og nýtti hann í Kínaförina og í tónleikaferð um Evrópu. Framundan hjá sveitinni á þessu ári er gerð nýrrar breiðskífu og verður Alex Somers, kærasti Jónsa í Sigur Rós, upptökustjóri.-fb
Tónlist Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira