Góða veizlu gjöra skal Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 16. mars 2012 11:00
Bíó. Project X. Leikstjórn: Nima Nourizadeh. Leikarar: Thomas Mann, Oliver Cooper, Jonathan Daniel Brown, Kirby Bliss Blanton, Alexis Knapp, Rick Shapiro, Brady Hender, Nick Nervies, Miles Teller. Þrír unglingspiltar ákveða að halda partý þegar foreldrar eins þeirra eru að heiman, en veislan er fljót að fara úr böndunum. Veglegri er söguþráðurinn ekki að þessu sinni, en Project X stólar á að áhorfendur afsaki það í þágu grínsins. Mannamótið í myndinni er vissulega fjörugt og uppátæki veislugesta til þess fallin að vekja hrifningu unglinga en fordæmingu fullorðna fólksins. Krakkaskarinn bryður alsælutöflur og berbrjósta stúlkur fara í myndavélasleik. Dvergur er læstur inni í bakaraofni og nágranni sem kvartar er beittur líkamlegu ofbeldi. Þó stuðaði ekkert af þessu mig sérstaklega, en kvenfyrirlitning og hómófóbía aðalpersónanna gerði það hins vegar. Fjandsamleg hegðun þeirra og viðhorf þjóna hvorki kómískum tilgangi né hjálpa sögunni að neinu leyti. Líklega er tilgangurinn eingöngu sá að ýta undir mýtuna um meintan níhílisma klámkynslóðarinnar. Eða kannski er ég bara orðinn svo gamall og úr sambandi við raunveruleikann að sjá ekkert fyndið eða sniðugt við 17 ára stráka að tala um það að ríða druslum. Kvikmyndin hefur slegið í gegn vestanhafs og mun vafalaust gera það hér á landi einnig. Ekkert sem ég skrifa mun draga úr því, en um leið finnst mér dapurlegt að hugsa til þess að nútímamaðurinn sé hættur að gera þá kröfu á gamanmyndir að þær séu fyndnar. Project X inniheldur enga brandara, engar spaugilegar kringumstæður og ekki eina einustu aðlaðandi persónu. Stuðið er til staðar en það dugir ekki til. Niðurstaða: Hressilegt partý en fremur misheppnuð mynd.
Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fleiri fréttir Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Sjá meira