Þurfti að bíða í hálft ár með að segja frá sigrinum 4. maí 2012 20:00 Birta Ísólfsdóttir, fatahönnuður og sigurvegari Hannað fyrir Ísland. Mynd/Valli
Birta Ísólfsdóttir, fatahönnuður, bar sigur úr býtum í hönnunarkeppninni Hannað fyrir Ísland sem sýnd var á Stöð 2. Alls tóku níu hönnuðir þátt í keppninni og þótti Birta bera af í þeim hópi. Tökum á þáttunum lauk í nóvember og hefur Birta þurft að þegja yfir sigrinum síðan þá. „Þetta kom mér auðvitað svolítið á óvart en það var mjög gaman að vinna keppnina. Ég þurfti að bíða ansi lengi með að geta sagt fólki fréttirnar og margir voru orðnir mjög forvitnir og spurðu mikið út í þetta, en ég náði að halda þessu leyndu þar til á miðvikudaginn var," segir Birta sem gat þó blessunarlega rætt úrslitin við vinkonu sína, Laufeyju Ingibjörgu Lúðvíksdóttur, sem tók einnig þátt í keppninni og hreppti þriðja sætið. Birta hlaut í verðlaun eina milljón króna, saumavél og starf hjá 66° Norður og þurfti hún einnig að halda þessu leyndu fyrir sínum nánustu til að koma ekki upp um úrslit keppninnar. „Ég byrjaði að vinna í janúar en mátti auðvitað ekki segja neinum og þurfti því að ljúga að vinum og vandamönnum um hvar ég væri á daginn," segir Birta sem taldi fólki trú um að hún væri að vinna í hinum og þessum verkefnum. Vinnan leggst vel í Birtu og segist hún hafa lært margt og mikið á þeim stutta tíma sem hún hefur starfað hjá fyrirtækinu. Hún hefur mestan áhuga á hönnun götufatnaðar en síðasta verkefni keppninnar var einmitt að hanna götujakka. Áður hafði Birta dvalið í New York í ár þar sem hún starfaði sem Au pair. Þegar Birta er innt eftir því hvort hún hafi þegar ráðstafað vinningsfénu svarar hún játandi. „Ég borgaði upp bílinn minn og greiddi tryggingar en á enn þá smá afgang sem ég ætla að nota í sjálfa mig," segir hún að lokum. sara@frettabladid.is
Mest lesið Marvel-stjarna varð fyrir heilaskaða Bíó og sjónvarp Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Búinn að sturta sig með fötu síðan í nóvember Lífið Opnar sig um augnlokaaðgerðina Lífið Enginn formaður Sjalla, Kaffi Vest-samsærið og vinir skoðanabræðra Menning Enduðu Stranger Things í Þjórsárdal Bíó og sjónvarp Þetta fengu ráðherrarnir gefins Lífið Dóttir Tommy Lee Jones fannst látin Lífið Króli og Birta eignuðust lítinn prins Lífið Nýársbingó Blökastsins á rólegasta degi ársins Lífið Fleiri fréttir Best klæddu Íslendingarnir 2025 Pæjur, börn og nóg af leðri fyrir alla Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Ástin blómstrar í appelsínugulu leðri „Maður á ekki að vera feiminn við að vera fínn“ Einn áhrifamesti arkitekt samtímans látinn Best klæddu stjörnurnar samkvæmt Vogue Langskemmtilegast að vera alveg sama Skilaboð frá Höllu á Facebook upphaf að farsælu samstarfi Heitustu pörin í húrrandi jólagír Sjá meira