Aftur til 1997 Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 30. maí 2012 10:00
Bíó. Men in Black 3. Leikstjórn: Barry Sonnenfeld. Leikarar: Will Smith, Tommy Lee Jones, Josh Brolin, Jemaine Clement, Michael Stuhlbarg, Emma Thompson, Will Arnett. Árið 1997 sló kvikmyndin Men in Black rækilega í gegn, en þar fylgdumst við með leyniþjónustumönnunum J (Will Smith) og K (Tommy Lee Jones) lenda í ýmsum ævintýrum og nokkrum árum síðar kom framhaldsmyndin, Men in Black 2, sem naut einnig vinsælda. Síðan er liðinn heill áratugur og þessar geðþekku persónur hafa fallið í gleymskunnar dá. Í þriðju myndinni, sem kemur nú eins og skrattinn úr sauðaleggnum, sleppur illræmdi morðinginn Boris skepna úr fangelsi á tunglinu og ferðast með tímavél aftur til ársins 1969 þar sem hann kemur K fyrir kattarnef, rétt áður en hann stingur Boris í steininn. Þegar J fær fregnir af því að félagi hans hafi dáið fyrir rúmlega 40 árum eltir hann skepnuna til 7. áratugarins og reynir að breyta atburðarásinni, og fær að lokum hjálp frá sjálfum K sem ungum manni (Josh Brolin). Þristurinn er skemmtileg viðbót við seríuna og er betri framhaldsmynd en önnur myndin. Will Smith er fæddur í sitt hlutverk og töffaraskapur Tommy Lee Jones hefur ekkert minnkað þó leikarinn sé nú á sjötugsaldri. Josh Brolin er ótrúlegur sem hinn ungi K og nær töktum persónunnar svo vel að á köflum grunaði mig að einhver tölvubrögð væru í tafli, en svo er víst ekki. Ég á erfitt með að setja mig í spor áhorfenda sem ekki hafa séð fyrri myndirnar, en fyrir okkur sem þekkjum persónurnar og sögusviðið er Men in Black 3 prýðileg skemmtun. Brellurnar eru flottar og þrívíddin óvenju safarík, en það er húmorinn og léttleikinn sem gleðja mest. En ekki hvað? Það hefði þó alveg mátt dusta rykið af gamla titillaginu. Allavega hafði ég búið mig undir að gerast jiggy með ferska prinsinum. Niðurstaða: Afbragðs tímaflakk. Svartklæddu mennirnir hafa engu gleymt.
Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fleiri fréttir Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Sjá meira