Lói fyrir lengra komna Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 6. júlí 2012 12:00
Bíó. The Amazing Spider-Man. Leikstjórn: Marc Webb. Leikarar: Andrew Garfield, Emma Stone, Rhys Ifans, Denis Leary, Campbell Scott, Irrfan Khan, Martin Sheen, Sally Field, Chris Zylka. Það eru ekki nema tíu ár liðin frá frumsýningu fyrstu myndarinnar í þríleik leikstjórans Sams Raimi um Köngulóarmanninn. Sú sería var á köflum ágæt en leið fyrir lélegar tölvubrellur og það að aðalleikarinn hentaði ekki í hlutverkið. Nú er því byrjað upp á nýtt og er það leikstjórinn Marc Webb (ekki grín) sem situr við stjórnvölinn. Aðdáendur þessarar langlífu myndasöguhetju fá að fylgjast með því eina ferðina enn hvernig hann varð eins og hann er, en í þetta sinn eiga þeir von á óvæntum glaðningi. Sköpunarsaga Lóa er nefnilega þrælvel uppbyggð og Andrew Garfield er fullkominn í hlutverk Peters Parker. Emma Stone er sömuleiðis sannfærandi sem hin 17 ára Gwen Stacy, og í raun er leikaraliðið eins og það leggur sig í fantagóðum gír. Það er ekki fyrr en hasarinn hefst fyrir alvöru sem myndin misstígur sig. Eðlumaðurinn er ferkantað og klunnalegt illmenni og seinni hálfleikur The Amazing Spider-Man er mun meiri skrímslamynd en nokkurn tímann ofurhetjumynd. Þá er frágangi lausra enda einnig ábótavant, þó mig gruni reyndar að einhverjir þeirra verði leystir í framhaldsmyndum. Það bendir samt ýmislegt til þess að Köngulóarmaðurinn eigi bjarta framtíð fyrir sér á þessum trausta grunni sem hér er byggður. Brellurnar eru fyrsta flokks og brandararnir til staðar. Það sem skiptir þó lykilmáli er að Lói er loksins orðinn bíóhetja sem haldandi er með. Sorrí Tobey Maguire, en nú sést það enn betur hvað þú varst lélegur Spædermann. Niðurstaða: Skref í rétta átt fyrir Köngulóarmanninn.
Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fleiri fréttir Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Sjá meira