Leikfimi fyrir konur 24. ágúst 2012 09:02 Árdís Hulda Óskarsdóttir, þjálfari hjá Heilsuborg, kennir kvennaleikfimina. mynd/stefán „
Þetta er gamla góða leikfimin þar sem áhersla er lögð á góðar styrktaræfingar en lítið er um hopp. Æfingarnar eru fjölbreyttar svo allar konur ættu að finna eitthvað við sitt hæfi," segir Árdís Hulda Óskarsdóttir íþróttafræðingur, en hún kennir kvennaleikfimi hjá Heilsuborg. Kvennaleikfimin er fjögurra vikna námskeið og hentar konum á öllum aldri. „Þetta er góð leikfimi fyrir allar konur sem vilja styrkja sig og líða betur. Það er gott að vera í félagsskap í föstum hóp, þá eru meiri líkur á að þú haldir áfram. Við byggjum námskeiðið upp á leikfimi í sal og svo á stöðvum í tækjahring. Við kennum tvisvar í viku, klukkan 10 á þriðjudögum og fimmtudögum en það er hægt að koma í frían prufutíma. Eins er hægt að festa sig strax á þrjá mánuði, þá er verðið aðeins hagstæðara." Árdís er með BS í íþróttafræði úr HR og hóf störf hjá Heilsuborg í sumar. Hún er þaulreyndur þjálfari og starfaði meðal annars áður hjá World Class. „Ég hef kennt frá árinu 2007 ýmis námskeið og hef góðan bakgrunn. Ég kenni einnig önnur námskeið hér hjá Heilsuborg og ef kvennaleikfimin reynist eitthvað sem ekki hentar viðkomandi er fjöldi annarra námskeiða í boði hjá okkur. Hugsunin á bak við kvennaleikfimina er að ná saman konum sem vilja hreyfa sig í góðum félagsskap. Það þarf ekkert að stressa sig á rétta klæðnaðinum, bara koma eins og manni líður best." Nánari upplýsingar er að finna á www.heilsuborg.is.
Heilsa Mest lesið Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Viðskipti innlent Ofurtollarnir lækkaðir tímabundið Viðskipti erlent Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Viðskipti innlent Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Samstarf Ríkið eignast hlut í Norwegian Viðskipti erlent Svandís tekur við Fastus lausnum Viðskipti innlent Hrósæfingar fyrir vinnustaði, gryfjur og góð ráð Atvinnulíf Hækkanir á Asíumörkuðum Viðskipti erlent Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Viðskipti erlent Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent