Hefur framleitt 700 stykki af Jóni forseta 29. september 2012 11:00 Lágmyndir vöruhönnuðarins Almars Alfreðsonar af Jóni Sigurðssyni hafa átt miklum vinsældum að fagna en Almar hefur selt yfir 700 stykki. Fréttablaðið/Valli "
Þetta litla verkefni hefur aldeilis undið upp á sig,“ segir vöruhönnuðurinn Almar Alfreðsson en lágmyndir hans af Jóni Sigurðssyni hafa slegið í gegn undanfarið.Almar fékk hugmyndina fyrir tveimur árum er hann vantaði jólagjöf fyrir ættingja og vini. Hann var þá nemi í Listaháskóla Íslands í vöruhönnun."Ég keypti mér gamlan koparplatta í Góða hirðinum fyrir nokkrum árum sem varð fyrirmynd gipsplattans. Ég hef verið að grennlast fyrir um uppruna hans og fengið þónokkur svör en engin sem geta staðfest upprunann,“ segir Almar sem telur þó líklegt að plattinn hafi verið búinn til fyrir Lýðveldishátíðina árið 1944 þegar margir einkaaðilar bjuggu til vörur og seldu til styrktar félagasamtökum.Jólagjafir Almars slógu í gegn og strax eftir áramót fóru að berast pantanir í gripinn. Nú hefur Almar vart undan og hefur samtals gert yfir 700 stykki. Á 200 ára afmæli Jóns Sigurðssonar í fyrra fannst Almari tilvalið að bjóða upp á gipsplattann í tuttugu mismunandi litum. "Flestir vanda sig mjög við litavalið og margir sem eru í áskrift hjá mér og kaupa nýjan lit í hverjum mánuði. Svo eru nokkrir sem hafa keypt alla tuttugu litina og fest upp á vegg sem heilt verk.“Almar hefur ekki neina sérstaka skýringu á vinsældum verksins nema þá helst að myndir af Jóni Sigurðssyni kitli þjóðarstoltið. Hann er nú þegar byrjaður að spá í nýjar útfærslur á verkinu og þá með öðrum þekktum einstaklingum í aðalhlutverki. "Ég hef fengið margar fyrirspurnir um að gera forsetann Ólaf Ragnar Grímsson, Halldór Laxness, Matthías Jochumsson og svo auðvitað Vigdísi Finnbogadóttir en það er allt saman á byrjunarreit.“Hægt er að fá upplýsingar um sölustaði á Facebook undir nafninu Jón í lit og á heimasíðunni Almar.is. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Þetta fengu ráðherrarnir gefins Lífið Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Tónlist Fékk útskýringu frá ChatGPT eftir áratugaleit að svörum Lífið Þórdís Elva bað poppstjörnunnar Lífið Opnar sig um augnlokaaðgerðina Lífið Króli og Birta eignuðust lítinn prins Lífið Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi Lífið Í leyfi frá skjánum til að styðja eiginmanninn í veikindum Lífið Breytti um nafn eftir djúpa ástarsorg Tónlist Fleiri fréttir Best klæddu Íslendingarnir 2025 Pæjur, börn og nóg af leðri fyrir alla Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Ástin blómstrar í appelsínugulu leðri „Maður á ekki að vera feiminn við að vera fínn“ Einn áhrifamesti arkitekt samtímans látinn Best klæddu stjörnurnar samkvæmt Vogue Langskemmtilegast að vera alveg sama Skilaboð frá Höllu á Facebook upphaf að farsælu samstarfi Heitustu pörin í húrrandi jólagír Sjá meira