Saga lítilla heimóttarlegra karla Sif Sigmarsdóttir skrifar 31. desember 2012 06:00 Ísland í aldanna rás 2001-2010.
Bækur. Ísland í aldanna rás 2001-2010. Bergsteinn Sigurðsson og Björn Þór Sigbjörnsson. JPV. "Saga heimsins er saga mikilla manna,“ sagði skoski heimspekingurinn og sagnfræðingurinn Thomas Carlyle sem uppi var á 19. öld. Kenning Carlyle var sú að söguna bæri að skoða út frá "miklum mönnum“, hetjum sem í krafti gáfna, persónutöfra eða pólitískrar útsjónarsemi stýrðu henni. Við lestur bókarinnar Ísland í aldanna rás, yfirlitsrits um sögu Íslands frá 2001 til 2010 eftir Björn Þór Sigbjörnsson og Bergstein Sigurðsson, virðist saga Íslands síðustu tíu ára þvert á móti vera saga lítilla manna; heimóttarlegra karla sem drifnir eru af valdaþorsta, græðgi og frænd- og vinahygli. Þótt höfundar bókarinnar segist í aðfaraorðum ekki hafa verið að skrifa sögu aðdraganda hrunsins er erfitt sem sjálfhverfur samtímalesandi að leitast ekki við að elta uppi þá atburðarás sem leiddi okkur í þá súpu sem við sitjum í nú; að skoða "öld öfganna“ eins og fyrsti áratugur 21. aldarinnar hefur verið kallaður í auglýsingaherferð fyrir bókina gegnum hruns-gleraugun. Og vandfundin er skemmtilegri vettvangsrannsókn um einkavæðingu, útrás, framkvæmdagleði, ofþenslu og hrun síðustu tíu ára en Ísland í aldanna rás. Eins og í fyrri bindum bókaflokksins er helstu viðburðum hvers árs gerð skil í máli og myndum. Efnistök eru fjölbreytt og taka þau að miklu leyti mið af því sem hátt fór í fjölmiðlum hverju sinni en fjallað er um pólitík, viðskipti, listir, sakamál, íþróttir og dægurmál ýmiss konar. Útgáfan er vegleg að ytri gerð; bókin stór og pappírinn nautnalega þykkur og glansandi. Og innihaldið stendur svo sannarlega undir veglegu yfirborðinu. Efnið er valið af natni og er gott jafnvægi milli lengri úttekta á landsmálunum og léttri umfjöllun um mannlífið á borð við strauma og stefnur í kaffidrykkju (árið 2001 tók "coffee to go“ að ryðja sér til rúms og var enginn maður með mönnum nema hann væri með kaffimál í hönd) og klæðnaði (árið 2005 urðu Íslendingar óðir í lopapeysur). Texti bókarinnar er lipurlega ritaður og aðgengilegur. Kímni setur mark sitt á stílinn sem gerir textann jafnframt karakterríkan og grípandi. Hvergi glittir í þurran upptalningastílinn, gryfju sem yfirlitsriti af þessu tagi gæti verið hætt við að falla í. Enda þótt þjóðin eigi sinn sess í bókinni eru það litlu, heimóttarlegu karlarnir – og vinir þeirra – sem fara með aðalhlutverkið: Belju-kyssandi ráðherrar, viðskiptajöfrar sem flugu í útrás á því sem reyndust vaxvængir sem bráðnuðu er þeir hættu sér of nálægt sólinni, forseti sem mundaði klappstýrudúskana í takt við vængjasláttinn en kannaðist svo ekkert við danssporin þegar vængirnir voru farnir af útrásarliðinu, pólitíkusar sem skiptu bróðurlega milli manna sinna einkavæddum auðæfum ríkisins og fundu þeim svo pláss í dómstólunum eða stjórnsýslunni sem ekki fengu banka í sinn hlut. Og svo fór sem fór. Að lesa Ísland í aldanna rás er dálítið eins og að spila morðgátuspilið Cluedo. Þar sem höfundar leitast ekki við að skýra orsakir hrunsins fellur það í skaut lesandans að púsla saman þeim vísbendingum sem liggja fyrir svo finna megi þann seka. Á tíðum er bókin því eins og besti reyfari, full af ráðgátum, leyndardómum og ótrúlegum vendingum. Að Arnaldi ólöstuðum hlýtur Ísland í aldanna rás að teljast með bestu glæpasögum ársins. Niðurstaða: Frábær vettvangsrannsókn um öld öfganna. Reyfarakennd lesning sem slær Arnaldi við.
Gagnrýni Mest lesið Stjörnulífið: „Bið ekki um meira“ Lífið Svikarar höfðu fjórar milljónir af Aroni Can Lífið Nóa-Siríus fjölskyldan fyrrverandi selur súkkulaðihöll Lífið „Við María eigum rosalega fallegt samband og erum þakklát hvort fyrir annað“ Lífið Óttast að hann sé fyrsta fórnarlamb flugunnar Lífið Áhrifavaldur greiddi sextán milljónir fyrir auglýsingar á samfélagsmiðlum: „Hvar eru allir peningarnir?” Lífið Fær ógeðistilfinningu eftir fullnægingu Lífið Sænskur og sjóðheitur undir áhrifum BDSM Tíska og hönnun „Setti sjálfa mig í fyrsta sæti og hef aldrei verið hamingjusamari“ Lífið Virtist hvorki geta séð né andað Tíska og hönnun Fleiri fréttir Slappur smassborgari Shine on, you crazy Íslendingar! Skömminni skilað Friðrik Ómar bauð upp á sveppi – og Villi hefði elskað það! Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Veisla fyrir augu og eyru Ekki er allt gull sem glóir Þeir fátæku borga brúsann Auður í Bæjarbíói: Frá slaufun í standandi fagnaðarlæti Alvöru bíó en hægt brenna Eldarnir Er Lína Langsokkur woke? Kórtónleikar: Heilög naumhyggja eða heilalaust suð Barnaefni fyrir fullorðna Balta bregst bogalistin Þú heyrðir rétt: klassík getur verið skemmtileg Sjá meira
Áhrifavaldur greiddi sextán milljónir fyrir auglýsingar á samfélagsmiðlum: „Hvar eru allir peningarnir?” Lífið
Áhrifavaldur greiddi sextán milljónir fyrir auglýsingar á samfélagsmiðlum: „Hvar eru allir peningarnir?” Lífið