Tíska og hönnun

Þetta er óvenjuleg sjón

Kryddpían og tískugoðið Victoria Beckham er yfirleitt uppstríluð þegar ljósmyndarar ná myndum af henni. Því var mjög óvenjulegt að sjá hana í gallabuxum og peysu í vikunni í London.

Victoria var að sjálfsögðu sjúklega smart samt sem áður og poppaði dressið upp með himinháum stígvélum frá Christian Louboutin. Handtaskan, sólgleraugun og gallabuxurnar eru hins vegar úr hennar eigin tískulínu.

Stórglæsileg.
Eiginmaður Victoriu, David, staðfesti það í vikunni að hann ætlaði að spila fyrir liðið Paris St Germain í fimm mánuði. Skötuhjúin munu því búa bæði í Frakklandi og Bretlandi á næstunni.

Góð taska.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.