Tíska og hönnun

STÍLL - Elle Macpherson

Starfsaldur áströlsku ofurfyrirsætunnar Elle Macpherson verður að teljast ansi hár miðað við það sem gengur og gerist í módelbransanum, en hún varð fimmtug í vikunni. Macpherson hefur starfað sem fyrirsæta frá unglingsárum og fékk viðurnefið „The Body" eða kroppurinn eftir að hún prýddi forsíðu Sports Illustrated's árið 1986. Hún er talin vera ein af fyrstu ofurfyrirsætum heims og hefur verið afar tekjuhá í gegnum tíðina. Samhliða fyrirsætustörfunum stofnaði hún meðal annars eigið nærfatafyrirtæki og hefur verið kynnir í tveimur raunveruleikaþáttum. Hér sjáum við brot af klæðnaði þessarar glæsilegu konu í gegnum tíðina.

Á Óskarnum árið 2000.
Árið 2009 í partýi hjá Vanity Fair.
Í kjól frá Victoriu Beckham árið 2009.
Í hvítri dragt frá Ralph Lauren í fyrra.
Árið 1990.
2007 á rauða dreglinum.
Glæsileg á verðlaunahátíð 2012.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.