Tíska og hönnun

Marilyn Manson er nýtt andlit Saint Laurent

Tónlistarmaðurinn umdeildi Marilyn Manson er nýjasta andlit herralínu franska tískuhússins Saint Laurent. Heidi Simane, listrænn stjórnandi þar á bæ, er þekktur fyrir að nota þekkt og öðruvísi andlit í auglýsingaherferðir. Það er ekki langt síðan tónlistarfólkið Beck og Sky Ferreira sátu fyrir hjá honum, en einnig hafa fyrirsæturnar Anja Rubik, Edie Campbell og Saskia de Brauw unnið með tískuhúsinu síðustu misseri.

Eins og er hefur bara ein mynd af Marylin verið gerð opinber, en það verður spennandi að sjá það sem koma skal.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.