Konan og börnin fá að vita þetta fyrst Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. maí 2013 13:45 Jose Mourinho.
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, er á leiðinni burtu frá félaginu samkvæmt spænskum fjölmiðlum en Portúgalinn hefur ekki viljað gefa neitt upp um framtíð sína og ávallt svarað í hálfkveðnum vísum. Mestar líkur eru taldar á því að Jose Mourinho snúi aftur til Chelsea og hann var enn á ný spurður út í framtíð sína á blaðamannafundi fyrir leik Real Madrid í spænsku deildinni um helgina. „Þegar ég ákveð framtíð mína þá fá konan og börnin að vita fyrst hvert ég fer. Á eftir því mun ég tala við forsetann og framkvæmdastjórann," sagði Jose Mourinho. "Ég hef ekki ákveðið neitt ennþá. Samband mitt og stuðningsmannanna Real Madrid er fullkomið," sagði Mourinho. Real Madrid datt út úr undanúrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni og hefur fyrir löngu tapað spænska meistaratitlinum til Barcelona. Jose Mourinho áður "The Special one" en nú kallaður "The SemiSpecial one" í spænskum fjölmiðlum hefur lent í hverju stríðinu á fætur öðru síðan að hann tók við Real Madrid sumarið 2010. Liðið hefur unnið tvo stóra titla undir hans stjórn, vann deildina í fyrra og bikarinn fyrir tveimur árum. Real Madrid fær eitt tækifæri enn til að vinna titil á þessu ári en liðið mætir nágrönnum sínum í Atletico Madrid í úrslitaleik spænska bikarsins.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Fleiri fréttir HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Sjá meira