Tíska og hönnun

Prinsessan endurnýtir enn einn kjólinn

Kate Middleton, hertogynjan af Cambridge, mætti í brúðkaup vina sinna á Englandi um helgina í doppóttum kjól frá Topshop.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún klæðist kjólnum en hún var í honum þegar hún heimsótti stúdíó Warner Bros í lok apríl. Þá var hún í jakka frá Ralph Lauren og hælum frá Episode við.

Í flippinu með Harry og Vilhjálmi.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kate endurnýtir fötin sín og virðist hún vera afar nýtin þó engar séu peningaáhyggjurnar á þeim bænum.

Sjarmerandi kona.
Nú styttist í að fyrsta barn Kate og eiginmanns hennar, Vilhjálms Bretaprins, komi í heiminn en Kate á von á sér í júlí.

Styttist í fyrsta barn.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.