Tvö útgerðarfélög eignast dragnótaskipið Portland 31. maí 2013 12:34
Tvö útgerðarfélög, þ.e. Dala Rafn ehf, og Útgerðarfélagið Glófaxi ehf., óskuðu eftir viðræðum við Vestmannaeyjabæ í gær um að fá kauptilboðið á dragnótaskipið Portland VE 79 framselt til sín. Eins og kunnugt er af fréttum í ákvað Vestmannaeyjabær að nýta sér forkaupsrétt sinn að skipinu. Í tilkynningu segir að eftir viðræður hefur Vestmannaeyjabær framselt kauptilboðið til þessara tveggja rótgrónu fjölskylduútgerða í Vestmannaeyjum. Þar með munu þessir aðilar eignast Portlandið ásamt öllu því sem fylgir og fylgja ber þ.m.t. tilheyrandi aflahlutdeild og aflamark ásamt öllum veiðafærum. Aðkomu Vestmannaeyjabæjar að málinu er þar með lokið. Vestmannaeyjabær fagnar því að með þessu samkomulagi er tryggt að umræddar aflaheimildir fari ekki frá Vestmannaeyjum með tilheyrandi skaða fyrir samfélagið. Vestmannaeyjabær gerir sér ljósa grein fyrir því að þessar rótgrónu fjölskylduútgerðir hafa tekið þessa ákvörðun í trausti þess að hin nýja ríkisstjórn standi við þær yfirlýsingar sem gefnar hafa verið um að treysta rekstrargrunn sjávarútvegsfyrirtækja með endurskoðun á veiðileyfagjaldi og fl. Slíkt verður að vera forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Viðskipti innlent Treystu ekki Kaupþingi Viðskipti innlent Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Viðskipti innlent Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Sjá meira