Arnór og Þorkell ráðnir til ALDA Asset Management 30. maí 2013 12:26
ALDA Asset Management hefur ráðið Arnór Gunnarsson sem forstöðumann hlutabréfa og Þorkel Magnússon sem forstöðumann skuldabréfa. Báðir hafa þeir mikla reynslu af fjármálamörkuðum og eignastýringu. Þeir voru áður forstöðumenn samsvarandi sviða hjá Stefni hf., dótturfélagi Arion banka, og tóku virkan þátt í uppbyggingu félagsins, að því er segir í tilkynningu um ráðninguna. Arnór er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið prófi sem Chartered Financial Analyst® (CFA). Arnór hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Hann starfaði sem forstöðumaður hlutabréfasviðs Stefnis hf. frá árinu 2007 til 2013 og var forstöðumaður sjóðastýringar Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. frá ársbyrjun 2006 til 2007. Arnór hóf störf hjá Kaupþingi hf. árið 2001 sem sérfræðingur á eignastýringarsviði. Á árunum 2002 til 2006 gegndi hann stöðu sjóðstjóra Frjálsa lífeyrissjóðsins auk fleiri sjóða í umsjón eignastýringarsviðs fagfjárfesta hjá Kaupþingi. Þorkell er verkfræðingur frá Háskóla Íslands og er með M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá University of Minnesota. Þorkell hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Hann starfaði sem forstöðumaður skuldabréfasviðs hjá Stefni hf. frá ársbyrjun 2007 til 2013 og sem staðgengill framkvæmdastjóra félagsins frá 2009 til 2013. Þorkell hóf störf hjá Kaupþingi hf. árið 1998, starfaði í greiningadeild og síðar sem sjóðstjóri Hlutabréfasjóðsins Auðlindar hf. Á árunum 2001 til 2007 gegndi hann stöðu sjóðstjóra innlendra og erlendra skuldabréfasjóða hjá Rekstrarfélagi Kaupþings ásamt því að taka þátt þróun á sérhæfðum fjárfestingum hjá félaginu.
Mest lesið Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Viðskipti innlent Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Viðskipti innlent Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Treystu ekki Kaupþingi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Sjá meira