Tíska og hönnun

Endurnýtti blómakjólinn í brúðkaupi

Leikkonan Jennifer Aniston mætti í blómakjól frá Prada í brúðkaup stjörnuparsins Lake Bell og Scott Campbell um helgina en þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún klæðist kjólnum.

Hún klæddist honum fyrst í júlí árið 2011 þegar hún stimplaði sig inn í frægðarhöll Hollywood hjá hinu sögufræga Chinese Theater.

Árið 2011.

Jennifer mætti með unnusta sinn, Justin Theroux, upp á arminn í brúðkaupið en þau voru langt frá því að vera eina fræga fólkið á staðnum. Meðal annarra gesta voru Eva Longoria, Kate Bosworth, Alicia Silverstone og Cameron Diaz.

Um helgina.
Brúðhjónin.

Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.