SFÚ óskar eftir fundi með Sigurði Inga 4. júní 2013 12:36
Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ) hefur sent Sigurði Inga Jóhannssyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, árnaðaróskir um farsæld í nýju starfi og beðið um fund með ráðherranum til að ræða málefni samtakanna. Samkeppnisumhverfi í sjávarútvegi hallar mjög á sjálfstæða framleiðendur og stjórnvöld hafa látið undir höfuð leggjast að lagfæra samkeppnisskilyrði þrátt fyrir eindregin tilmæli m.a. frá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SFÚ. Þar segir að síðastliðið haust vann KPMG skýrslu fyrir SFÚ um áhrif fiskmarkaða á fiskverð með sérstaka áherslu á að skoða áhrifin fyrir hafnarsjóði og útsvarstekjur sveitarfélaga. Niðurstöðurnar voru afgerandi. Tekjur sveitarfélaga myndu hækka um 1 milljarð á ári og tekjur hafnarsjóða um tæpar 300 milljónir ef skiptaverð verðlagsstofu yrði aflagt og markaðsverð notað í viðskiptum. Er þá ekki tekið tillit til þess tekjuauka, sem kæmi í ríkissjóð. SFÚ telur mjög mikilvægt út frá samkeppni- og þjóðhagssjónarmiðum að tryggt verði stóraukið framboð af fiski á innlenda fiskmarkaði og að markaðsverð verði notað í öllum viðskiptum. Slíkt ýtir undir innlenda verðmætasköpun og gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins. SFÚ hefur óskað eftir fundi með nýjum sjávarútvegsráðherra eins fljótt og auðið er til að ræða þessi brýnu hagsmunamál þjóðarinnar. Jafnframt er ráðherrann boðinn velkominn í kynningarheimsókn í eitt af aðildarfyrirtækjum samtakanna í Reykjavík.
Mest lesið Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Viðskipti innlent Treystu ekki Kaupþingi Viðskipti innlent Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Viðskipti innlent Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Sjá meira