Rifós stefnir á 1.000 tonna bleikjueldi 3. júní 2013 09:12
Fiskeldisfyrirtækið Rifós í Kelduhverfi stefnir á að hætta laxeldi sínu og einbeita sér í staðinn að bleikjueldi. Félagið hefur starfsleyfi fyrir 1.000 tonna eldi á bleikju. Fjallað er um málið á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins undir formerkinu „Jákvæð frétt“. Þar segir að hjá fiskeldisfyrirtækinu Rifósi hf. í Kelduhverfi horfa menn bjartsýnir fram á veginn og eru að búa sig undir stækkun fyrirtækisins. „Við erum að hefja uppbyggingu á bleikjueldi á landi," segir Hlífar Karlsson, framkvæmdastjóri Rifóss en um algera stefnubreytingu er að ræða þar sem allt eldi fyrirtækisins hefur verið í sjókvíum hingað til. „Við höfum einnig ákveðið að hætta laxeldi og snúa okkur alfarið að bleikjueldi til útflutnings á Ameríkumarkað." Rifós hf. hefur nú starfsleyfi til 1.000 tonna eldis á bleikju að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Hlífar segir að stefnt sé að því að 20% eldisins fari fram á landi til að byrja með en ef vel tekst til getur hlutfallið orðið allt að 40%. „Þetta helgast af því að við höfum yfir að ráða 10°C eldishita frá náttúrulegum uppsprettum og búum þá við kjörhita allt árið á landi en í sjó er mikil hitasveifla og vaxtartíminn einungis 6-7 mánuðir. Hér er því um mjög gjaldeyrisskapandi uppbyggingu að ræða," segir Hlífar.
Mest lesið Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Viðskipti innlent Treystu ekki Kaupþingi Viðskipti innlent Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Viðskipti innlent Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Sjá meira