Bjóða út byggingarrétt í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási 14. júní 2013 13:31
Borgarráð hefur ákveðið að efna til sölu byggingarréttar í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási með nýjum skilyrðum. Horfið er frá sölu lóða á föstu verði með viðbótargjaldi en þær þess í stað boðnar út. Kaupendum byggingaréttar er boðið upp á staðgreiðsluafslátt eða afborgunarlaus lán fyrstu þrjú árin sem bera enga vexti fyrsta hálfa árið. Í tilkynningu segir að í boði séu 127 lóðir með byggingarrétti fyrir 271 íbúð. Með opnu tilboðsferli er jafnræðis gætt meðal þeirra sem áhuga hafa á lóðum í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási. Tilboðum þarf að skila í síðasta lagi 1. júlí. Framundan er mikil uppbygging þjónustumannvirkja fyrir Úlfarsárdal og Grafarholt. Byggja á nýjan skóla og nýja sundlaug fyrir almenning og skólasund. Sundlaug með útisvæði og heitum pottum verður opin almenningi en jafnframt verður lítil innilaug sem hentar til æfinga, kennslu og ungbarnasunds. Auk uppbyggingar á íþróttasvæði verður byggt nýtt íþróttahús til æfinga og keppni með áhorfendaaðstöðu. Í hönnunarsamkeppni um þessi mannvirki er einnig gert ráð fyrir rými fyrir menningarstarfsemi sem hluta af heildarþjónustunni með góðar tengingar við aðra starfsemi. Nýir greiðsluskilmálar fyrir lóðir í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási fela í sér að greitt er 10% staðfestingargjald og eftirstöðvar eru lánaðar til 8 ára, afborgunarlausar fyrstu 3 árin og án vaxta fyrsta hálfa árið. Verðtryggt veðskuldabréf ber 4,5% vexti, en óverðtryggt veðskuldabréf ber samsvarandi vexti og óverðtryggð lán hjá Seðlabanka Íslands. Veðskuldabréf eru gefin út á 1. veðrétt og er greitt af þeim einu sinni á ári. Í tilviki lögaðila er hámark á útgáfu veðskuldabréfs 80% af kaupverði byggingarréttar og greiðist í því tilviki að lágmarki 20% staðfestingargjald. Lóðir sem eru staðgreiddar fást hins vegar með 7% staðgreiðsluafslætti. Hæstbjóðendur í lóðir verða að skila inn upplýsingum um fjárhagslega stöðu sína fjórum vikum eftir að tilboðsfrestur rennur út. Einstaklingar þurfa að sýna fram á greiðsluhæfi að upphæð 45 milljónir í einbýlishús, 40 milljónir í raðhús og 25 milljónir á íbúð í fjölbýli. Lögaðilar þurfa að sýna fram á jákvæða eiginfjárstöðu.
Mest lesið Okkar eiginn Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Áfrýjar í Imon-málinu Viðskipti innlent Grettisgata drottnari heimagistingarinnar Viðskipti innlent Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Treystu ekki Kaupþingi Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira