Meiri kraftur í einkaneyslu kemur á óvart 14. júní 2013 10:59
Meiri vöxtur virðist ætla að verða í einkaneyslu á öðrum ársfjórðungi en á þeim fyrsta ef marka má tölur Seðlabanka Íslands um greiðslukortaveltu í maí sl. sem birtar voru í gær. Benda þær jafnframt til þess að gjaldeyristekjur vegna erlendra ferðamanna hafi verið umfram neysluútgjöld Íslendinga erlendis, og er það í fyrsta sinn sem slíkt er upp á teningnum í maímánuði, a.m.k. eins langt aftur og tölur Seðlabankans um kortaveltu ná. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að samkvæmt ofangreindum tölum var vöxtur í kortaveltu einstaklinga innanlands í maí heldur hægur á milli ára, eða sem nemur um 0,7% að raunvirði. Á hinn bóginn virðast Íslendingar hafa eytt mun meira erlendis í maí en þeir gerðu á sama tíma í fyrra, en þar nam aukningin um 10,2% að raunvirði. Er þetta í takti við tölur Ferðamálastofu Íslands um brottfarir Íslendinga um Flugstöð Leifs Eiríkssonar, en skv. þeim voru brottfarirnar 9,5% fleiri í maí sl. en á sama tíma í fyrra. Samanlagt jókst kortavelta einstaklinga um 1,6% að raunvirði í maí á milli ára, sem er talsvert hægari vöxtur en sá 3,0% vöxtur sem hafði verið mánuðinn á undan. Þrátt fyrir að ekki sé um mikinn vöxt að ræða, er þróunin öllu jákvæðari það sem af er öðrum ársfjórðungi en á þeim fyrsta, en þá dróst kortavelta einstaklinga saman um 0,9% milli ára. „Lengi vel hefur raunþróun kortaveltu einstaklinga gefið góða mynd af þróun einkaneyslu. Þó er óhætt að segja að nýlegar tölur Hagstofu Íslands um þróun hennar á fyrsta ársfjórðungi hafi komið okkur nokkuð á óvart, en skv. þeim jókst einkaneysla um 0,8% á fjórðungnum á milli ára að raunvirði. Þó ber að hafa í huga að tölur Hagstofunnar eru aðeins til bráðabirgða, og breytast stöðugt með hverri birtingu Hagstofunnar á þjóðhagsreikningum í nokkur ár eftir að fyrstu tölur líta dagsins ljós,“ segir í Morgunkorninu. Sjá nánar hér.
Mest lesið Okkar eiginn Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Áfrýjar í Imon-málinu Viðskipti innlent Grettisgata drottnari heimagistingarinnar Viðskipti innlent Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Treystu ekki Kaupþingi Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira