AGS segir lítið svigrúm til skuldaniðurfellinga 14. júní 2013 11:00 Frá fundinum í morgun. mynd/anton brink
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) segir að lítið fjárhagslegt svigrúm sé til frekari skuldaniðurfellinga hjá heimilunum eins og ríkisstjórnin hefur lofað. Þetta kemur fram í yfirlýsingu AGS sem kynnt var í dag í framhaldi af heimsókn fulltrúa sjóðsins hingað til lands. Hvað skuldaniðurfellingar varðar segir AGS að frekari skref í þeim efnum eigi að beinast að þeim sem ekki hafa fengið lausn sinna mála í gegnum þau úrræði sem gripið hefur verið til og eru til staðar. Einnig sé svigrúm til endurskipulagningar skulda hjá Íbúðalánasjóði. Þá er hvatt til þess að hraða vinnu og losa um stíflur hjá Umboðsmanni skuldara. Annað sem vekur athygli í yfirlýsingu AGS er að íslensk stjórnvöld eru hvött til þess að draga úr ríkisstyrkjum til landbúnaðarins og endurbæta rekstur Íbúðalánasjóðs. Vegna þeirrar áhættu sem sjóðurinn býr við þurfi að íhuga breytingar á rekstri hans, helst með aðstoð utanaðkomandi sérfræðinga. Fjármálaeftirlitið eigi að koma að þessari vinnu.Taka þarf á höftunum Hvað varðar hagkerfið í heild segir AGS að efnahagsbati landsins haldi áfram þótt fortíðarvandi sé enn dragbítur á hann. Atvinnuleysi fari áfram minnkandi en fjárfesting sé lítil. Óvissan í kringum það hvenær gjaldeyrishöftin verði afnumin hefur áhrif á fjárfestingar. Afnám gjaldeyrishaftanna þarf að fara fram á skipulegan hátt. Fyrst þurfi að ljúka vinnu við endanlegt uppgjör hjá gömlu bönkunum, þar á meðal því sem snýr að skuldabréfi Landsbankans. Þetta eigi að gera án þess að ógna fjármálastöðugleika landsins. Sjá lauslega þýðingu Seðlabankans á yfirlýsingunni hér.
Mest lesið Okkar eiginn Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Áfrýjar í Imon-málinu Viðskipti innlent Grettisgata drottnari heimagistingarinnar Viðskipti innlent Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Treystu ekki Kaupþingi Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira