Hæstiréttur: Bætur miðast við fasta búsetu 14. júní 2013 07:29
Tryggingastofnun ríkisins og íslenska ríkið voru sýknuð í Hæstarétti af öllum kröfum einstaklings um meintar ólögmætar skerðingar á greiðslum úr almannatryggingakerfinu. Með dóminum er staðfest niðurstaða héraðsdóms um að réttur fólks til greiðslna byggist á því hve lengi fólk hefur haft fasta búsetu hér á landi. Þetta kemur fram á vefsíðu stjórnarráðsins. Málið sem hér um ræðir snýst um að kona frá Venesúela fluttist til Íslands árið 1998, þá 38 ára gömul og giftist sama ár. Eftir alvarleg veikindi um aldamótin var hún metin 75% öryrki fram til 67 ára aldurs. Vegna þess hve stutt hún hafði búið á Íslandi fékk hún tæplega 71,5% bætur. Hún taldi þá skerðingu ólögmæta og fór í mál. Á vefsíðu stjórnarráðsins segir að Hæstiréttur vísar til þess að viðmið almannatryggingalaganna við búsetu væri almennt og gilti óháð ríkisborgararétti, kynferði, þjóðernisuppruna eða stöðu að öðru leyti. Var því hvorki fallist á það að reglurnar fælu í sér ólögmæta mismunun, færi í bága við 65. gr. stjórnarskrárinnar um jafnræði né að brotið væri með þeim gegn reglu um meðalhóf. Þá var ekki heldur fallist á að skerðingin hefði verið óheimil með vísan til 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar. Loks vísaði Hæstiréttur til þess að reglurnar fælu hvorki í sér skerðingu á eignarrétti í skilningi 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar, að miða ætti lífeyrisréttindi við búsetu maka né að reglurnar fælu með óbeinum hætti í sér skerðingu á réttindum barns. Sjá nánar hér og hér.
Mest lesið Okkar eiginn Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Áfrýjar í Imon-málinu Viðskipti innlent Grettisgata drottnari heimagistingarinnar Viðskipti innlent Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Treystu ekki Kaupþingi Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira