Könnun sýnir nægt framboð af starfsfólki á landinu 13. júní 2013 10:21
Nægt framboð er af starfsfólki um þessar mundir til að sinna eftirspurn fyrirtækja. Yfirgnæfandi meirihluti stjórnenda í atvinnulífinu telur að ekki sé skortur á starfsfólki. Einungis 13% stjórnenda finna fyrir skorti á starfsfólki en 87% ekki. Fjallað er um málið á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins en þetta er ein af niðurstöðum könnunar á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyrirtækja landsins, sem gerð var í síðasta mánuði fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabankann. Þetta er svipuð niðurstaða og í sambærilegri könnun fyrir ári síðan, þegar 14% stjórnenda fundu fyrir skorti á starfsfólki. Staðan er þó mjög mismunandi eftir atvinnugreinum. Skortur á starfsfólki virðist mjög mikill í byggingariðnaði þar sem tæplega 60% stjórnenda finna fyrir skorti á starfsfólki. Skortur er einnig töluverður í ferðaþjónustu, flutningum og ýmissi þjónustu þar sem um 20% stjórnenda finna fyrir skorti. Enginn skortur er hins vegar á starfsfólki í verslun og fjármálaþjónustu. Skorturinn er minnstur í stærstu fyrirtækjunum en tilfinnanlegur í minni og meðalstórum fyrirtækjum, nánar tiltekið þeirra sem hafa færri en 60 starfsmenn og ársveltu undir einum milljarði króna. Skortur á starfsfólki er heldur meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Á landsbyggðinni finna 16% stjórnenda fyrir skorti en 12% á höfuðborgarsvæðinu. Um 20% stjórnenda sjá fram á fjölgun starfsmanna á næstu sex mánuðum, 10% vænta fækkunar og 70% að starfsmannafjöldi verði óbreyttur. Mestrar fjölgunar er vænst í byggingariðnaði og ferða- og flutningaþjónustu.
Mest lesið Okkar eiginn Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Áfrýjar í Imon-málinu Viðskipti innlent Grettisgata drottnari heimagistingarinnar Viðskipti innlent Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Treystu ekki Kaupþingi Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira