Tæplega sjötug kona dæmd fyrir stórfelldan fjárdrátt 27. júní 2013 11:41 Kaupþing.
Anna V. Heiðdal var dæmd í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en hún var sakfelld fyrir að draga sér 50 milljónir króna í starfi sínu hjá einkabankaþjónustu á eignastýringarsviði Kaupþings. Anna millifærði söluandvirði verðbréfanna af bankareikningum kaupenda bréfanna inn á sinn eigin bankareikning í stað þess að ráðstafa því í þágu seljenda. Hún vildi ekki tjá sig við fréttastofu í morgun þegar haft var samband við hana. Árið 2009 sagði hún í viðtali við Fréttablaðið: „Þetta mál er faktískt ekki til". Þá hélt hún staðfastlega fram sakleysi sínu. Anna var sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur á síðasta ári. Dómari taldi þá skýringar Önnu í samræmi við frásagnir eigenda þeirra félaga sem seldu bréfin, en þar var um að ræða félögin Yl-hús og Hraunbær 107. Hæstiréttur ómerkti þennan dóm og sagði í niðurstöðunni að frásögn Önnu um lánveitingar til annars félagsins væri ekki studd neinum gögnum og á henni væri slíkur ólíkindablær að sennilegt mæti telja af niðurstaða héraðsdóms gæti verið röng. Mál Önnu var það fyrsta sem rataði fyrir dómstóla eftir hrun, en brot hennar uppgötvuðust ekki fyrr en skilanefnd tók yfir Kaupþing. Brotin áttu sér þó stað nokkru fyrir hrun, eða á bilinu 2004 til 2008. Refsingu Önnu er frestað í tvö ár og fellur niður að þeim tíma liðnum haldi hún almennt skilorð. Ástæðan fyrir að dómurinn er skilorðsbundinn er bæði vegna dráttar á málinu, en það hefur nú verið að velkjast innan dómskerfisins í fjögur ár. Einnig vegna aldurs Önnu, en hún er 69 ára gömul.
Mest lesið Markaðurinn 4. sept. Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Treystu ekki Kaupþingi Viðskipti innlent Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent Fjárfestar leigja Raufarhólshelli og rukka inn Viðskipti innlent Sófi fyrir nýsköpun Viðskipti innlent Áfrýjar í Imon-málinu Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Grindvíkingar fá fyrsta fimm stjörnu hótelið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira
Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent
Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent