Nýr sæstrengur til Eyja Kristján Hjálmarsson skrifar 15. júlí 2013 15:58 Það gekk á ýmsu við lagningu sæstrengsins milli lands og Eyja enda veður ekki alltaf eins og best verður á kosið.
Lagningu tæplega 13 kílómetra langs sæstrengs milli lands og Eyja, Vestmannaeyjastrengs 3, lauk síðdegis á föstudag. Stefnt er að því að ljúka lagningu jarðstrengja að sæstrengnum á Landeyjasandi og í Vestmannaeyjum á næstu vikum og standa vonir til þess að tengivinnu verði lokið í ágústmánuði, að því er segir í tilkynningu frá Landsneti. Til stóð að leggja strenginn í byrjun júlí en fresta þurfti framkvæmdum vegna veðurs. Á þriðjudaginn var byrjað á því að koma strengnum á land í Landeyjafjöru úr kapalskipinu Pleijel og tók sú vinna hátt í sólarhring. Verkið reyndist erfiðara en búist var við vegna hliðarstrauma og brims. Meðal annars hvolfdi bát í fjöruborðinu í þeim atgangi og var einn maður sendur á sjúkrahús til aðhlynningar. Hann reyndist sem betur fer ómeiddur. Fjarstýrður kafbátur var notaður til að leggja niður sæstrenginn og er það mál manna sem að komu að vel hafi tekist til, að því er segir í tilkynningu. Mestu hindranirnar á botninum voru næst Eyjum. Þetta er þriðji sæstrengurinn sem lagður er til Vestmannaeyja og leysir hann af hólmi Vestmannaeyjastreng 2 sem er illa farinn og ótraustur. Til að byrja með verður nýi strengurinn tengdur á 33 kV spennu en hann getur flutt allt að 66 kV spennu og því mögulegt að auka rafmagnsflutninga töluvert til Eyja þegar úrbætur hafa verið gerið á spennivirkjum í Eyjum og við Rimakot. Áætlaður heildarkostnaður Landsnets við lagningu Vestmannaeyjastrengs 3 er um 1,6 milljarðar króna.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Starfsmenn Bílanausts sendir heim Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira