Munu nú bjóða fjárfestum að taka þátt í fjármögnun Magma-skuldabréfsins 12. júlí 2013 16:11
Landsbréf munu á næstu vikum og mánuðum bjóða helstu viðskiptavinum sínum, sem einkum eru íslenskir stofnanafjárfestar og fagfjárfestar, að taka þátt í fjármögnun Magma-skuldabréfsins í gegnum fagfjárfestasjóð í rekstri Landsbréfa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum en borgarráð samþykkti í gær sölu á bréfinu. Tilboði fagfjárfestasjóðs í rekstri Landsbréfa hf. um kaup á skuldabréfi sem gefið var út af Magma Energy Sweden A/B árið 2009 hefur verið tekið af öllum eigendum Orkuveitunnar. Skuldabréfið var upphaflega hluti greiðslu fyrir hlut OR í HS Orku. Á bak við skuldabréfið stendur veð í hlutabréfum í HS Orku. Kaupverðið er 8,6 milljarðar króna. Sala á bréfinu var umdeild á meðal borgarfulltrúa, meðal annars kom fram í gagnrýni Þorleifs Gunnlaugssonar að það væri varhugavert að samþykkja sölu á svo stórum hlut í HS Orku án þess að vita hver raunverulegur kaupandi væri. Tilkynningu frá Landsbréfum má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:Tilboði fagfjárfestasjóðs í rekstri Landsbréfa hf. um kaup á skuldabréfi sem gefið var út af Magma Energy Sweden A/B árið 2009 hefur verið tekið af öllum eigendum OR.Skuldabréfið var upphaflega hluti greiðslu fyrir hlut OR í HS Orku. Á bak við skuldabréfið stendur veð í hlutabréfum í HS Orku. Kaupverðið er 8,6 milljarðar króna en um forsendur að öðru leyti vísast til tilkynningar Orkuveitu Reykjavíkur til Kauphallarinnar 11. júlí sl.Landsbréf settu fyrst fram tilboð í skuldabréfið þann 15. febrúar 2013 og hafa viðræður við OR staðið yfir síðan.Tilboðið er gert með fyrirvara um fjármögnun á kaupunum. Nú þegar allir eigendur OR hafa samþykkt kauptilboðið hefst söluferli á fjármögnun skuldabréfsins. Á næstu vikum og mánuðum munu Landsbréf bjóða helstu viðskiptavinum sínum, sem einkum eru íslenskir stofnanafjárfestar og fagfjárfestar, að taka þátt í fjármögnun skuldabréfsins í gegnum fagfjárfestasjóð í rekstri Landsbréfa.Sigþór Jónsson framkvæmdastjóri Landsbréfa hf.: „Ég fagna því að kauptilboði Landsbréfa hafi verið tekið, en við teljum skuldabréfið spennandi fjárfestingakost. Landsbréf hafa á undanförnum mánuðum vaxið hratt og bjóða upp á fjölbreytt úrval fjárfestingakosta fyrir fjárfesta. Á síðustu mánuðum stofnaði Landsbréf til að mynda framtakssjóðina Horn II slhf. og ITF I slhf. sem er framtakssjóður sem fjárfestir í ferðaþjónustu og nýverið var tilkynnt um að Tryggingasjóður innstæðueigenda hafi valið Landsbréf sem eitt af þremur fjármálafyrirtækjum til að annast eignastýringu fyrir sjóðinn. Við teljum skuldabréf Magma áhugaverða viðbót við fjölbreytta flóru sjóða sem Landsbréf bjóða viðskiptavinum sínum.“Um Landsbréf:Landsbréf eru sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki sem annast rekstur verðbréfasjóða, fjárfestingasjóða og fagfjárfestasjóða. Félagið starfar sem rekstrarfélag samkvæmt starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu og hefur einnig leyfi til eignastýringar. Eignir í stýringu hjá Landsbréfum eru um 100 milljarðar.
Mest lesið Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent Rekstur innan fjárheimilda Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Fjárfestar leigja Raufarhólshelli og rukka inn Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira
Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent
Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent