"Eins mikið beint frá býli og það getur orðið“ Ingveldur Geirsdóttir skrifar 20. júlí 2013 19:44
Á bóndabýlinu Garði í Eyjafjarðarsveit er rekið stórt kúabú. Meðfram búinu er rekið kaffihús á fjósloftinu og selt nautakjöt beint frá býli. Nýverið fékk búið kjötvinnsluleyfi en sjaldgæft er að þeir sem selji nautakjöt beint frá býli vinni kjötið sjálfir. Það er bóndasonurinn, Einar Örn Aðalsteinsson, sem sér um kjötvinnsluna og kaffihúsið. „Við vildum gefa fólki kosti á því að versla nautakjöt sem er virkilega beint frá býli. Við vinnum þetta allt saman hérna á býlinu og erum með faglærðan kjötiðnaðarmann sem sker fyrir okkur kjötið. Það er mikil eftirspurn, við finnum fyrir því, og við vildum bara svara henni,“ segir Einar í samtali við fréttastofu. Einar lét innrétta gamla mjólkurhúsið undir kjötvinnsluna og vinnur þar þrjá gripi í mánuði. Gripirnir eru aldir upp á bænum, fara til slátrunar á Akureyri og skrokkurinn kemur svo á búið þar sem hann er unninn í neytendapakkningar í nýju kjötvinnslunni. Kjötið er eins mikið beint frá býli og það getur orðið að sögn Einars. „Það er ekki mikið um það að þeir sem selji nautakjöt beint frá býli séu sjálfir að vinna það? Ekki svo ég viti til, ég ætla ekki að fullyrða neitt, en við erum komin með þetta stóra leyfi. Ég má selja kjötið hvert sem er og þess vegna fara í útflutning ef ég gæti það og ég má selja út um allt." Á fjósloftinu rekur Einar kaffihúsið Kaffi kú. Þar er hægt að gæða sér á veitingum með útsýni yfir fjósið og horfa á mjaltir í róbóta af sjónvarpsskjá. Einar segir kjötvinnsluna fara vel með kaffihúsarekstrinum og þar er hann með nautakjöt til sölu í litlum frysti. „Það vinnur ágætlega saman, við náum að kynna kjötið svolítið hérna en þetta er náttúrulega algjörlega ólíkt og truflar ekkert hvort annað."
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Starfsmenn Bílanausts sendir heim Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira