SA: Verðbólga á niðurleið Haraldur Guðmundsson skrifar 28. ágúst 2013 14:21 Samtök atvinnulífsins segja þróun næstu mánaða meðal annars ráðast af því hvort gengi krónunnar haldist stöðugt. MYND/GVA.
Samtök atvinnulífsins segja mikilvægt að halda aftur af hækkun gjaldskráa og almennri verðhækkun á vöru og þjónustu í landinu svo hægt verði að halda verðbólgunni, sem nú er á niðurleið, í skefjum. Í frétt sem birtist á vef samtakanna segir að þróun næstu mánaða ráðist af því hvort gengi krónunnar haldist stöðugt og hvort takist að ná „skynsamlegri niðurstöðu í kjarasamningum á vinnumarkaði.“ Þar segir jafnframt að þegar litið sé til síðustu 6 mánaða sé verðbólga reiknuð til árshækkunar um 1,9%. „Vísitala neysluverðs hefur hækkað úr 409,9 stigum í 413,3 stig frá febrúar til ágúst á þessu ári. Frá því í ágúst 2012 hækkaði neysluverðsvísitalan mest í september 2012 (0,8%) og í febrúar 2013 (1,6%). Þessar hækkanir stöfuðu fyrst og fremst af lækkun gengis krónunnar í fyrra tilvikinu og af almennum launahækkunum og hækkun gjaldskráa í seinna tilvikinu. Mikilvægt er að komandi kjarasamningar stefni þessari þróun ekki í voða. Verðbólguþróunin undanfarna mánuði ýtir undir nauðsyn þess að skynsamlegir kjarasamningar náist á vinnumarkaði þar sem launahækkunum er stillt í hóf. Það er allra hagur að halda verðbólgunni í skefjum. Það leiðir til minni hækkana verðtryggðra lána fólks og fyrirtækja og eykur líkur á því að niðurstaða kjarasamninga skili almenningi auknum kaupmætti,“ segir í fréttinni.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Tæknirisar takast á Viðskipti erlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira