Ætlaði aldrei að senda ávísanir í pósti 22. ágúst 2013 10:25 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra er í viðtali við Kjarnann, nýtt rafrænt tímarit sem kom út í dag.
Ekki stóð til að senda þeim sem eiga að fá niðurfellingu á skuldum ávísun í pósti strax í sumar. Þetta kemur fram í viðtali við Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í Kjarnanum, nýju rafrænu tímariti sem kom út í dag. „Ég reyndi að eyða þeim misskilningi í kosningabaráttunni. Það hefur alltaf legið ljóst fyrir að það tæki tíma til að skapa aðstæður þar sem þetta væri framkvæmanlegt. Vinna við það er samkvæmt áætlun," segir Sigmundur Davíð. Forsætisráðherra segir í viðtalinu að það fari eftir því hvernig ákveðnar forsendur þróast hvort sérfræðihópur, sem á að útfæra skuldaniðurfærsluna, nái að skila af sér í nóvember eins og þingsályktunartillaga sem samþykkt var gerir ráð fyrir. Í stjórnarsáttmálanum hafi verið opnað á hina svokölluðu leiðréttingarsjóðsleið, meðal annars vegna óvissu um þá þróun. Hins vegar sé engin ástæða til að ætla að sérfræðihóparnir skili ekki af sér tímanlega. „Þetta er það stórt mál að það verður alltaf umdeilt. Mér sýnist hluti stjórnarandstöðunnar ætla að vera á móti niðurstöðunni, hver sem hún verður. En vonandi verða sem flestir sáttir. Við munum hafa það sem meginmarkið í þessari niðurstöðu um skuldalækkanir að hún snúist um jafnræði. Út frá þróuninni að undanförnu þá hefur hún ekki útilokað eina leið frá annarri," segir Sigmundur Davíð í viðtalinu við Kjarnann. Hann vill ekki nefna ákveðnar dagsetningar í þeim efnum en segir að skuldaniðurfellingar megi ekki dragast óhóflega. „Það er hins vegar alveg ljóst að því fyrr sem menn geta eytt þeirri óvissu sem hefur verið ríkjandi í nokkur ár um skuldamál heimilanna, þeim mun betra verður það fyrir samfélagið. Þannig að það liggur á,“ segir SIgmundur Davíð.Lesa má viðtalið við Sigmund Davíð í heild sinni á heimasíðu Kjarnans.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Upphrópanir um bónusa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira