Bale er byrjaður að læra spænsku - myndir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. september 2013 13:15 Gareth Bale með fjölskykldu sinni. Mynd/AFP
Gareth Bale var í dag kynntur til sögunnar sem leikmaður Real Madrid. Hann er dýrasti leikmaður knattspyrnusögunnar en kaupverðið er 100 milljónir evra eða tæplega 16 milljarðar íslenskra króna. „Ég vil spila í Meistaradeildinni og við viljum vinna tíunda Evrópumeistaratitil Real Madrid,“ sagði Gareth Bale á blaðamannafundi í Madríd í dag. Myndasyrpu frá komu Bale til spænska stórveldisins má sjá í glugganum hér að ofan. Bale sagði að félagaskiptin væru draumi líkust og hann setji sjálfur pressu á sig að standa undir væntingum. „Ég hef alltaf fylgst með spænska fótboltanum og deildin er stórkostleg. Mér hefur alltaf líkað vel við Real Madrid og fylgst með gengi liðsins.“ Bale sagði Danyel Levy, stjórnarformann Tottenham, erfiðan viðureignar í viðskiptum. Hann þakkar þó fyrir að félagaskiptin hafi gengið í gegn. Hjá Real hittir hann fyrir Cristiano Ronaldo en báðir eru miklir aukaspyrnusérfræðingar. „Cristiano ræður ferðinni hérna enda besti leikmaður í heimi. Ég vil læra af honum,“ sagði Bale. Hann viðurkenndi að vera stressaður en aðallega ánægður og spenntur. „Ég er byrjaður að læra spænsku. Það skiptir mig miklu máli og ég er spenntur fyrir því að bæta við mig tungumáli.“ Bale sagðist hafa haldið góðu sambandi við Luka Modric síðan Króatinn hélt til Real Madrid frá Tottenham síðastliðið sumar. Hann hafi mælt með því að Bale gengi í raðir spænska félagsins. Aðspurður um áhuga frá Manchester United sagði Bale: „Ég ætlaði alltaf til Real Madrid.“
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Löggan þorði ekki að þiggja miða HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sjá meira