Bjarni vill að ríkið haldi 35-40% í Landsbanka eftir skráningu Þorbjörn Þórðarson skrifar 19. september 2013 20:00
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra vill selja eignarhluti ríkisins í Íslandsbanka og Arion banka og skrá Landsbankann á markað. Hann segir æskilegt að ríkissjóður fari með stóran hlut í Landsbankanum til langframa. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra flutti ávarp á fundi Landsbankans sem bar yfirskriftina: Eru íslensk fjármálafyrirtæki spennandi fjárfestingarskostur?Íslandsbanki og Arion banki þurfa nýja alvöru eigendur Eitt af því sem bar á góma í ræðu Bjarna var framtíðarsýn hans fyrir aðkomu ríkisins að fjármálamarkaði. Bjarn segir að Íslandsbanki og Arion banki þurfi að fá nýja eigendur og komist úr eignarhaldi þrotabúa. Samhliða því geti ríkið losað hlut sinn í þeim. „Fyrir Landsbankann þá sé ég fyrir mér að við getum á næstu arum skráð þann banka þegar endurfjármögnun hans er tryggð og að ríkið trappi síðan í rólegheitum niður sinn eignarhlut allt eftir því sem við teljum að skili ríkinu mestum arði,“ segir Bjarni.Ef við horfum raunsætt á hlutina í ljósi þeirra hundruð milljarða króna sem ríkissjóður lagði í endurreisn bankakerfisins með víkjandi lánum og öðru, er ekki frekar ósennilegt að þessir peningar skili sér til baka, miðað við bókfært virði eigin fjár á bilinu 0,5-1? „Ég tel að ef menn vanda sig og reyni ekki að ná þessu öllu til baka í einu heldur vanda hvert skref og horfa heildstætt á þessa mynd þá sé það mjög raunhæft að ríkið fái til baka það sem fjárfest hefur verið í bönkunum.“ Bjarni segir að æskilegt sé að ríkissjóður haldi 30-40 prósenta hlut í bankanum varanlega eftir skráningu. Enn eru þó nokkrar hindranir í veginum svo ríkið geti losað um hlut sinn í Landsbankanum. „Það þarf heimild í fjárlögum til þess fyrir utan þessa almennu lagaheimild. Bankinn verður að ná að endurfjármagna sig og við þyrftum að fá aðeins betri kraft í efnahagslífið almennt. Að þessu öllu saman gefnu þá tel ég rétt að hefja undirbúning að sölu ríkisins á þessum hlut og í því sambandi tel ég að það geti stuðlað að vel heppnaðri skráningu bankans.“ Afstaða Bjarna er efnislega sú sama og fyrrum fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon hafði sett fram. Steingrímur lýsti þessu viðhorfi m.a í Klinkinu.Jan Olsson, framkvæmdastjóri Deutsche Bank á Norðurlöndunum.Skjáskot úr fréttum Stöðvar 2Jan Olsson hefur starfað hjá Deutsche Bank í aldarfjórðung og kemur reglulega til Íslands. Hann stýrir starfsemi Deutsche Bank á Norðurlöndunum. Fyrir hrunið þegar lánsfjármagn var nær ókeypis og allir íslensku bankarnir skiluðu milljarða hagnaði skapaðist samt nær engin eftirspurn frá erlendum fjárfestum eftir hlutabréfum þeirra.Arðurinn var til staðar erlenda fjárfestingu skorti þá. Hví skyldu erlendir aðila vilja fjárfesta hér í framtíðinni? „Í fyrsta lagi hafið þið endurskipulagt fjármálakerfið, þið hafið stofnað nýja banka og byggt upp nýtt fjármálakerfi. Við höfum það á tilfinningunni að möguleikarnir séu fyrir hendi. Ég er ekki skyggn og sé ekki framtíðina í smáatriðum. En ef á heildina er litið er það okkar tilfinning að þið hafið skipað hæfar stjórnir og komið á góðu stjórnunarfyrirkomulagi og sett á stofn hæfar stofnanir,“ segir Jan Olsson, framkvæmdastjóri Deutsche Bank á Norðurlöndunum.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira