Búin að selja Ungu ástina mína Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 18. september 2013 11:14 Sara Hlín býr ásamt eiginmanni og þremur börnum í Cambridge Mynd/úr safni
Sara Hlín Hálfdanardóttir stofnaði bókaforlagið Unga ástin mín árið 2006, nú sjö árum síðar hefur hún selt Bókafélaginu forlagið sitt og ætlar að einbeita sér að breskum markaði. „Fyrir sjö árum langaði mig að sameina móðurhlutverkið við gefandi og krefjandi verkefni. Ég var nýbúin að panta bækur frá Amazon og þá rann það upp fyrir mér að bókaútgáfa fyrir börn væri eitthvað fyrir mig,“ segir Sara. Sara Hlín hannaði vörumerkið Unga ástin mín og vildi bjóða upp á litríkar, vandaðar bækur fyrir yngstu börnin með ljósmyndum og fróðleik. Á þessum tíma var ekki algengt að bókaforlög aðgreindu sig á markaðnum en Sara lagði áherslu á að byggja upp sterkt vörumerki sem fólk myndi þekkja og ganga að vísu. Unga ástin mín hefur gefið út tæplega hundrað titla og endurprentað fjölda bóka sem eru sívinsælar hjá yngstu kynslóðinni. Sara býr ásamt eiginmanni og þremur börnum í Cambridge og hefur fjarlægðin við Ísland gert henni erfiðara að reka fyrirtækið. Valið stóð á milli þess að selja forlagið eða flytja heim til Íslands. En fjölskyldan er ekki tilbúin að koma heim strax. „Ég hef lært svo mikið og blómstrað á þessum árum og ég er stolt af því að skilja við forlagið núna því það stendur sterkt og ég náði markmiðum mínum. Núna er bara að henda sér út í djúpu laugina hér úti og prófa breska markaðinn. Ég er í undirbúningsvinnu þessa dagana, en mig langar að þróa vörumerki hér úti og einbeita mér að barnavörum sem tengjast hamingju og vellíðan barna,“ segir Sara.Eiginmaður Söru er Davíð Guðjónsson sem rekur fyrirtækið Handpoint. Þau hjónin deila skrifstofu saman. „Við sitjum hérna á móti hvort öðru og kyssumst yfir skrifborðið. Davíð hefur verið mjög duglegur að hvetja mig áfram og elta draumana. Ég sé aldrei eftir því enda hef ég kynnst svo miklu um sjálfa mig í þessu ferli og komist að því að maður er nú bara ágætur," segir Sara. Sara ákvað að enda bókaævintýrið með glans. „Síðasta bókin sem ég gef út undir merkjum Unga ástin mín er fyrsta bókin sem við bjuggum til alveg sjálf. Bókin heitir Íslensku dýrin mín og var að koma í verslanir í síðustu viku. Það var beðið um að fá íslensku sauðkindina í bækurnar og við urðum við því,“ segir Sara.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira