812 milljóna hagnaður hjá Isavia Jón Júlíus Karlsson skrifar 17. september 2013 15:43 Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia. Mynd/Samsett
Afkoma Isavia á fyrri helmingi ársins 2013 var góð og umfram áætlanir félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Rekstrartekjur samstæðunnar Isavia og dótturfélaganna Fríhafnarinnar og Tern Systems námu 8.920 milljónum króna, sem er 8% hækkun frá sama tímabili árið 2012. Stærstan hluta tekjuaukningarinnar má rekja til fjölgunar farþega um Keflavíkurflugvöll sem var 18,4%. Tekjur af flugleiðsöguþjónustu vegna yfirflugs og umferðar til og frá Íslandi jukust um 3,6% frá fyrra ári. Rekstrarhagnaður var 812 milljónir króna sem er 9,1% af tekjum samstæðunnar, heildarafkoma félagsins nam 1.367 milljónum króna og er þar tekjufærður gengishagnaður 1.089 milljónir króna. Heildarafkoma félagsins fyrir sama tímabil árið 2012 var 88 milljónir króna en gjaldfært gengistap nam þá 208 milljónum króna. „Hálfsársuppgjör Isavia sýnir að félagið er stöndugt og rekstur þess er tryggur,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia. „Umsvif félagsins hafa aukist verulega undanfarin ár í takt við mikla aukningu ferðamanna, enda er félagið einn af lykilaðilum í íslenskri ferðaþjónustu. Aukningin var þó ekki ófyrirséð og ráðist var í talsverðar fjárfestingar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar síðastliðinn vetur til þess að bæta flæði og auka þægindi flugfarþega. Nýtt brottfararhlið var tekið í notkun í norðurbyggingu, svæðum í suðurbyggingu var breytt í biðsvæði farþega og verslunarsvæði stækkað og endurbætt.“ Björn Óli segir að einnig hafi verið ráðist í stækkun flughlaðsins og hafinn er undirbúningur að smíði 4.000 fermetra þjónustubyggingar sem mun hýsa flugvallarþjónustudeild undir einu þaki í nágreni flugstöðvarinnar. Kostnaður við þessar endurbætur er áætlaður 3,5 milljarðar króna. Gert er ráð fyrir að á næstu árum þurfi að veita 5-10 milljörðum króna í stækkunar flugstöðvarinnar og endurbóta á flugbrautum. „Það er því ljóst að til framtíðar litið þarf rekstur Isavia að standa undir miklum fjárfestingum svo tryggt sé að áætlaðri farþegaaukningu verði mætt með sóma,“ segir Björn Óli.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira