Íslandsbani nýr þjálfari Skúla Jóns hjá Elfsborg Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. september 2013 17:09 Klas Ingesson fagnar með sænska landsliðinu á HM 1994. Mynd/NordicPhotos/Getty
Sænska liðið Elfsborg hefur ráðið nýjan þjálfara en Joergen Lennartsson var rekinn frá félaginu í dag. Klas Ingesson mun taka við liðinu en hann var í bronsliði Svía frá HM 1994. Skúli Jón Friðgeirsson, fyrrum KR-ingur, leikur með liði Elfsborg en hann hefur ekki fengið nein tækifæri með liðinu á þessu tímabili. Nú er bara að sjá hvort koma Klas Ingesson breyti einhverju um það. Joergen Lennartsson gerði Elfsborg að sænskum meisturum í fyrra en það hefur ekki gengið eins vel hjá liðinu á þessu tímabili. Elfsborg er sem stendur í 6. sæti tólf stigum á eftir toppliði Malmö. Klas Ingesson er 45 ára gamall og sigraðist á krabbameini fyrir nokkrum árum. Þetta er hans fyrsta alvörustarf sem þjálfari meistaraflokks en leikmannaferill hans endaði á Ítalíu árið 2001. Ingesson hefur síðustu árin unnið sem unglingaþjálfari hjá Elfsborg. Klas Ingesson lék á sínum tíma með IFK Göteborg, Mechelen, PSV Eindhoven, Sheffield Wednesday, Bari, Bologna, Marseille og Lecce en hann skoraði 13 mörk í 57 landsleikjum fyrir Svía. Klas Ingesson hefur sterka Íslandstengingu því hann skoraði sigurmark Svía í 1-0 sigri á Íslandi á Laugardalsvellinum 7. september 1994 en sænska liðið var þó "nýkomið" frá HM í Bandaríkjunum þar sem liðið vann bronsið.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira