Davíð Þór Jónsson mætti í spjall í útvarpsþáttinn Harmageddon í morgun. Hann útskrifaðist úr guðfræði við Háskóla Íslands fyrir tveimur árum og skrifaði þá ritgerð um helvíti í frásögnum Jesú Krists.
Davíð var spurður all rækilega út í boðskap frelsarans sem mörgum þykir ansi vafasamur, þrátt fyrir útbreiddan miskilning um annað.
En trúir þú því sjálfur að Jesú hafi verið sonur Guðs, sendur niður á Jörðina til þess að toga hér í spotta?
„Ég hef tekið þá ákvörðun að hafa Jesú Krist sem leiðtoga lífs míns,“ sagði Davíð Þór en bætti við: „Ég trúi og efast. Fyrir mér er trú að gangast við efanum.“
Hlustið á hressilegt viðtal við Davíð Þór hér að ofan.
Harmageddon