Transmaður kýs dauðann eftir misheppnaða aðgerð á kynfærum Frosti Logason skrifar 3. október 2013 17:33
Nathan Verhelst, 44 ára gamall Belgi, fæddist sem konan Nancy. Hann lést fyrr í vikunni í kjölfarið á banvænni sprautu sem læknir hans, Dr. Wim Distelmans veitti honum að eigin ósk. Nathan hafði hafið hormóna meðferð árið 2009 og lét þá fjarlægja brjóst sín. Í fyrra lét hann svo græða á sig getnaðarlim en líkami hans virtist hafna ígræðslunni. „Engin af þessum aðgerðum heppnaðist eins og hún átti að gera,“ sagði Nathan við belgískt dagblað stuttu áður en hann fór til læknisins til þess að deyja. „Ég var að búa mig undir það að geta fagnað endurfæðingu minni, en þegar ég leit í spegil fékk ég ógeð á sjálfum mér. Minn nýi brjóstkakassi stóðst ekki væntingar mínar og limur minn sýndi einkenni höfnunar. Ég vil ekki vera ófreskja.“ Nathan sagði einnig frá afar andstyggilegum uppvaxtarárum sínum í belgískum blöðum. Móðir hans virtist ekkert hafa viljað með hann hafa þar sem hann fæddist í líkama stúlku. Hún hampað bræðrum hans ítrekað á meðan hún til dæmis bjó um Nathan í litlu geymsluplássi fyrir ofan bílskúrinn. „Bara ef þú hefðir fæðst sem drengur,“ á hún að hafa sagt við Nathan þegar hann var yngri. Maðurinn sem framdi líknarmorðið, Wim Distelmans, er afar umdeildur í Belgíu. Í fyrra batt hann enda á líf heyrnalausra tvíbura sem voru að verða blindir. Líknarmorð er löglegt í Belgíu við ákveðnar aðstæður og að uppfylltum vissum skilyrðum. Hægt er að lesa nánar um málið á vef The Telegraph.
Harmageddon Mest lesið Stiklað á stóru úr sögu Pixies Harmageddon Þorgerður Katrín segir Íslendinga verða að hætta tala niður listir og menningu Harmageddon Sannleikurinn: 65% hjónabanda á Íslandi enda með dauða Harmageddon Slash aftur í Guns N' Roses? Harmageddon Sannleikurinn: Þetta hefði getað verið ég sem missti vinnuna í dag Harmageddon Gene Simmons segir rokkið dautt Harmageddon Rokk Quiz á Bar 11 í kvöld Harmageddon Viltu vinna nýju Hjálmaplötuna? Harmageddon Plötusala í Bandaríkjunum aldrei verið minni Harmageddon Sannleikurinn: Ómar Ragnarsson handsamaður Harmageddon