Stjórnendur svartsýnni á þróun verðbólgu UE skrifar 18. október 2013 10:30 Þeir sem eru með verðtryggð lán hafa tilefni til svartsýni vegna verðbólguvæntinga.
Stjórnendur stærstu fyrirtækja landsins vænta þess að verðbólga á Íslandi verði um 3,7 prósent eftir eitt ár en verði komin upp í 4,6 prósent eftir tvö ár. Núna er verðbólgan 3,9 prósent. Þetta kemur fram á vef Greiningardeildar Íslandsbanka. Þetta er töluvert svartsýnni spá en sú sem gerð var í maí á þessu ári þar sem kom fram að stjórnendur bjuggust við að tólf mánuðum síðar væri verðbólgan komin niður í 3,2 prósent. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent gerði fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabankann í september. Verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5 prósent. Í maí jók Seðlabankinn virkni sína á gjaldeyrismarkaði í von um að auka stöðugleika gjaldmiðilsins og lækka verðbólguvæntingar. Markmiðið var að bankinn myndi ná verðbólgumarkmiði sínu. Minni sveiflur hafa verið á gengi krónunnar en eins og áður segir hafa verðbólguvæntingar versnað. Ástæður fyrir tregðu í verðbólguvæntingu telur nefndin að sé óvissa um áhrif kjarasamninga, greiðslubyrði erlendra lána, uppgjörum þrotabúa gömlu bankanna og yfirvofandi losun fjármagnshafta á gengisþróun. Í könnun Capacent kemur einnig fram að tæpur helmingur stjórnenda væntir þess að gengi krónunnar lækki á næsta ári.
Mest lesið Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira