Hittu yfirmenn hjá Facebook og Apple Haraldur Guðmundsson skrifar 17. október 2013 12:09 Þorsteinn B. Friðriksson, framkvæmdastjóri og stofnandi Plain Vanilla Mynd/Plain Vanilla.
Stjórnendur íslenska leikjaframleiðandans Plain Vanilla funduðu nýverið með yfirmönnum hjá Facebook og Apple. Tilgangur fundanna var að ræða samstarf vegna útgáfu Quizup, sem er spurningaleikur sem Plain Vanilla hefur þróað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Plain Vanilla. „Bæði þessi þekktu fyrirtæki hafa aðkomu að undirbúningi þess þegar nýir leikir og forrit eru kynnt sem búist er við að njóti mikilla vinsælda. Einnig átti Plain Vanilla í sömu ferð fundi með ýmsum fjárfestingarsjóðum í Sílíkondal sem sýnt hafa áhuga á að koma að fyrirtækinu. Gert er ráð fyrir að QuizUp spurningaleikurinn, sem er app sem notendur hlaða niður í farsíma og spjaldtölvur, komi út í nóvember," segir í tilkynningunni. Þorsteinn B. Friðriksson, framkvæmdastjóri og stofnandi Plain Vanilla, segir í tilkynningunni að það sé mikilvægt fyrir fyrirtækið að hafa aðila eins og Apple með sér í liði. „Það eru fjárfestar á bakvið okkur sem fjármagna mikla markaðsherferð sem farið verður í, en það skiptir ekki síður máli að vinna með dreifingaraðilum. Það er síðan aðkoma þessara öflugu bandarísku fjárfesta sem tryggt hefur okkur beinan aðgang að Apple og Facebook og fleirum. Við fundum fyrir því að það ríkir mikil eftirvænting í tækniheiminum fyrir QuizUp," segir Þorsteinn.
Mest lesið Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira