Kerecis hlýtur hvatningarverðlaun LÍÚ 24. október 2013 15:45 Mikil eftirspurn hefur verið eftir vörum Kerecis.
Fyrirtækið Kerecis hlýtir hvatningarverðlaun LÍÚ árið 2013. Kerecis er framsækið nýsköpunarfyrirtæki á Ísafirði sem hefur þróað einstakar heilbrigðisvörur úr þorskroði. Kerecis vinnur þannig verðmæti úr afurð sem talin var úrgangur og er frábært dæmi um þá vaxtarmöguleika sem íslenskur sjávarútvegur býr yfir, samfélaginu öllu til hagsbóta. Kerecis er í farabroddi í heiminum í hagnýtingu á omega 3 olíu við framleiðslu á húðkremum og fékk nýverið staðfest einkaleyfi í Bandaríkjunum á aðferð sinni. Stærsta verkefni Kerecis er framleiðsla og markaðssetning á stoðefninu MariGen úr þorskroði, sem notað er til að græða þrálát sár. Hröð útbreiðsla sykursýki í þróuðum samfélögum hefur gert skilvirka sárameðferð enn mikilvægari. Sem dæmi um þörf á vörum á borð við þær sem Kerecis framleiðir má nefna að á ári hverju þarf að aflima um 100 þúsund Bandaríkjamenn vegna þrálátra sára og er stærstur hluti þess vegna sykursýki.Tæknin og framleiðslan Kerecis fær roð af eldisþorski í Ísafjarðardjúpi frá Hraðfrystihúsinu Gunnvöru og Klofningi. Við meðhöndlun Kerecis í verksmiðjunni á Ísafirði eru allar frumur og ofnæmisvaldar fjarlægðir úr roðinu. Þá stendur eftir roðbútur sem samanstendur af próteingrind og Omega 3 olíum. Roðbútarnir eru síðan skornir í búta, sem lagðir eru í vatn fyrir notkun. Efninu er því næst komið fyrir í sárinu sem síðan er lokað með venjulegum sáraumbúðum. Roðbúturinn virkar eins og svampur og heilbrigðar frumur líkamans leita skjóls í stoðgrindinni á meðan þær græða sárið. Úr hverju þorskroði fást átta til tíu bútar af þessu tagi. Stofnendur Kerecis eru Guðmundur Fertram Sigurjónsson, læknarnir Baldur Tumi Baldursson og Hilmar Kjartansson og Ernest Kenney, lögfræðingur í einkaleyfismálum. Guðmundur er jafnframt starfandi stjórnarformaður Kerecis.
Mest lesið Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira