Guðjón Valur fór hamförum í sigri Íslands á Austuríkismönnum Stefán Árni Pálsson skrifar 1. nóvember 2013 21:07 Guðjón Valur í leik með íslenska landsliðinu.
Íslenska landsliðið í handbolta vann góðan sigur á því austurríska, 29-28, í vináttulandsleik í Linz í Austurríki í kvöld. Íslenska liðið byrjaði leikinn virkilega vel og komst fljótlega sjö mörkum yfir 14-7. Guðjón Valur Sigurðsson var stórbrotinn í fyrri hálfleiknum og eftir tuttugu mínútna leik hafði hann gert sjö mörk. Staðan var 20-15 fyrir Íslendingum í hálfleik. Íslenska liðið gaf örlítið eftir í þeim síðari og varð leikurinn mun meira spennandi. Þegar þrettán mínútur voru eftir af leiknum náðu Austurríkismenn að jafna metin í 25-25 en Íslendingar voru sterkari á lokasprettinum og unnu að lokum fínan sigur. Guðjón Valur var atkvæðamestu í íslenska liðinu með ellefu mörk. Ásgeir Örn Hallgrímsson átti einnig góðan leik með íslenska liðinu og skoraði sex mörk. Viktor Szilagyi var markahæstur í liði Austurríkis með sjö mörk en Patrekur Jóhannesson er þjálfari austuríska landsliðsins í handknattleik. Liðin mætast aftur á sama stað í kvöld en um er að ræða leiki í undirbúningi liðsins fyrir Evrópumótið í Danmörku sem fram fer í upphafi næsta árs.Markaskorar Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 11/4, Ásgeir Örn Hallgrímsson 6, Róbert Gunnarsson 3, Ólafur Bjarki Ragnarsson 3, Kári Kristján Kristjánsson 1, Arnór Atlason 1, Þórir Ólafsson 1, Snorri Steinn Guðjónsson 1, Ólafur Guðmundsson 1, Ernir Hrafn Arnarson 1.
Íslenski handboltinn Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira