Sannleikurinn: Íslenska landsliðið bauð kókaín fyrir vændi Andri Þór Sturluson skrifar 18. nóvember 2013 18:04 Lars var ekki sáttur við spurningu blaðamanns á fundinum í dag.
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck segja frétt fréttastofu frá því fyrr í dag um að íslenska landsliðið hefði farið með vændiskonur upp á hótelherbergi eftir leikinn á Íslandi vera ranga. Landsliðsþjálfari Íslands var allt annað en sáttur við spurningu blaðamanns á fundi með blaðamönnum í Zagreb í dag. Var hann spurður hvort refsa ætti íslensku leikmönnunum sem fóru með fjölda nektardansmeyja upp á hótelherbergi til sín og buðu þeim kókaín í skiptum fyrir vændi eftir markalausa jafnteflið á föstudagskvöldið. „Ég spyr til baka: trúir þú þessu?“ svaraði Lars sem var frekar pirraður þegar hann ræddi við fjölmiðlamenn rétt áðan. „Þessir menn geta ekki komið bolta í eitt helvítis mark, þeir eru ekki nógu góðir til að skora hjá vændiskonum,“ sagði hann. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu fóru átta leikmenn íslenska liðsins með rúmlega 70 vændiskonur upp á herbergi til sín fljótlega eftir viðureignina við Króata. Það eru hátt í tíu konur á mann. Konurnar voru nektardansmeyjar á staðnum VIP Club á Austurstræti. Samkvæmt sömu heimildum yfirgáfu flestar vændiskonurnar hótelið klukkan fjögur um nóttina en læti voru enn í herberginu til fimm. Daginn eftir fundust leyfar eftir kókaínneyslu í herberginu. Fréttastofa stendur að sjálfsögðu fyllilega við frétt sína frá því fyrr í dag.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur 70 Facebook-síður
Harmageddon Mest lesið Mark Lanegan í Fríkirkjunni 30. nóvember Harmageddon Stefán Jón vill bæta lífskjör starfsmanna RÚV Harmageddon Nýju myndbandi með Hljómsveitt lekið á netið Harmageddon Með rokkið í blóðinu Harmageddon Þið sem hélduð að geitungar væru andstyggilegir Harmageddon Sannleikurinn: Íslenska landsliðið bauð kókaín fyrir vændi Harmageddon Fannst ekki spennandi að spila Little Talks fimm sinnum á dag Harmageddon Afhverju kaupir Facebook önnur fyrirtæki á yfirverði? Harmageddon Sannleikurinn: Fjölga þarf lögreglukonum til að kynferðislegt áreiti dreifist á fleiri konur Harmageddon „Ég geri þá kröfu að þú hleypir mér héðan út!“ Harmageddon
Sannleikurinn: Fjölga þarf lögreglukonum til að kynferðislegt áreiti dreifist á fleiri konur Harmageddon
Sannleikurinn: Fjölga þarf lögreglukonum til að kynferðislegt áreiti dreifist á fleiri konur Harmageddon