Ríkið endurgreiði Vífilfelli 80 milljóna króna stjórnvaldssekt Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 18. nóvember 2013 13:09 Vífilfell framleiðir meðal annars drykkinn vinsæla, Coca Cola.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur snúið við úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála þess efnis að Vífilfell hafi brotið gegn samkeppnislögum og skal íslenska ríkið greiða Vífilfelli til baka 80 milljónir króna sem fyrirtækið hafði greitt í stjórnvaldssekt. Þetta staðfestir lögmaður Vífilfells. Samkeppniseftirlitið hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að Vífilfell hefði brotið gegn ákvæðum um bann við misnotkun á markaðsráðandi stöðu og gert fyrirtækinu að greiða 260 milljónir í stjórnvaldssekt. Málið snerist um samninga Vífilfells við birgja þar sem viðsemjendur skuldbundu sig til að bjóða eingöngu upp á vörur frá Vífilfelli en auk þess skoðaði Samkeppniseftirlitið ákvæði samninga sem virtust viðhalda tryggð endursöluaðila við vörur fyrirtækisins. Taldi Samkeppniseftirlitið að viðskiptasamningar Vífilfells hefðu að geyma ákvæði þar sem viðsemjendur fyrirtækisins skuldbundu sig til að tryggja Vífilfelli hillupláss, framsetningu og aðra stöðu sem virtist ætlað að viðhalda og styrkja markaðsráðandi stöðu fyrirtækisins. Í öðrum samningum skuldbundu viðsemjendur áfrýjanda sig til að bjóða eingöngu upp á vörur frá Vífilfelli og einhverjum ákvæðum var ætlað að viðhalda tryggð endursöluaðila við vörur fyrirtækisins. Vífilfell kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar í samkeppnismálum sem staðfesti niðurstöðu eftirlitsins en lækkaði sekt Vífilfells í 80 milljónir. Héraðsdómur hefur nú ógilt úrskurð áfrýjunarnefndarinnar og gert ríkinu að endurgreiða Vífilfelli fjárhæðina.
Mest lesið Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira