Vitnaleiðslumál Vilhjálms gegn Björgólfi heldur áfram Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 18. nóvember 2013 10:55 Vilhjálmur Bjarnason og Björgólfur Thor Björgólfsson.
Vitnaleiðslumál Vilhjálms Bjarnasonar gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni var tekið fyrir í dag. Málið höfðaði Vilhjálmur til að leiða fram upplýsingar um eignarhlut Björgólfs í Landsbankanum fyrir hrun. Málið hefur reynst þungt í rekstri þar sem vitni hafa ítrekað neitað að tjá sig og bera fyrir sig þagnarskyldu og trúnaði. Í dag var tekist á um framlagningu tölvupóstar sem Birgir Már Ragnarsson, lögmaður og starfsmaður félagsins Samson, ritaði til Fjármálaeftirlitsins snemma árs 2007 þar sem tilkynnt var um breytingar á eignarhaldi Samson. Í yfirlýsingu frá Björgólfi frá árinu 2010, segir að í tölvupóstinum komi fram hverjir hluthafar Samson eru, þar á meðal að félag starfsmanna haldi á 5% hlut í Givenshire, sem átti hlut í Samson. Lögmaður Vilhjálms krafðist þess í málflutningi sínum að Birgi verði gert skylt af dómara að leggja fram skjalið, enda hafi það verið nauðsynlegt til að hægt hefði verið að leggja mat á ársreikning Landsbankans. Lögmaður Björgólfs bað dómara að hafna kröfu Vilhjálms og vísaði enn til trúnaðarskyldu.Hæstiréttur hafði áður snúið við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur og heimilað Vilhjálmi að taka skýrslur af vitnum vegna hugsanlegra málaferla á hendur Björgólfi Thor. Vilhjálmur vildi fá að leiða Björgólf Thor og sextán aðra nafngreinda einstaklinga fyrir dóm og taka af þeim skýrslur, en Hæstiréttur veitti heimild til að taka skýrslur af öllum einstaklingunum nema Björgólfi Thor sjálfum þar sem hann yrði aðili að málinu ef af stefnu verður. Þá mun Björgólfur Guðmundsson, faðir Björgólfs Thor, ekki heldur þurfa að bera vitni í málinu, þar sem nákomnir ættingjar geta skorast undan því að bera vitni gegn þeim sem málshöfðun beinist gegn.
Mest lesið Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira