Ræktar kryddjurtir í bakgarðinum Haraldur Guðmundsson skrifar 13. nóvember 2013 09:16 Stefán Hrafnkelson, framkvæmdastjóri Betware, seldi í síðustu viku fyrirtækið sem hann og tveir samstarfsfélagar hans stofnuðu árið 1998. Fréttablaðið/Vallli
Stefán Hrafnkelsson, framkvæmdastjóri, stofnandi og fyrrverandi aðaleigandi íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins Betware, seldi sextán prósenta hlut sinn í fyrirtækinu síðastliðinn fimmtudag. „Það var alltaf markmiðið að selja fyrirtækið erlendum aðilum þegar það væri búið að ná sæmilegri stærð og við náðum því markmiði í síðustu viku þegar ég skrifaði undir og austurríska fyrirtækjasamsteypan Novomatic keypti fyrirtækið,“ segir Stefán. „Sagan nær hins vegar aftur til ársins 1986 þegar ég var nýkominn úr námi og ákvað að nýta mér þau tækifæri sem fólust í rafrænum viðskiptum.“ Stefán lærði rafmagnsverkfræði og tölvunarfræði við Háskóla Íslands á fyrri hluta níunda áratugar. Eftir það lauk hann meistaragráðu í tölvuverkfræði við Washington-háskóla í Seattle í Bandaríkjunum. „Að námi loknu starfaði ég sem forritari hjá Microsoft og flutti síðan heim og vann við verkefnastjórnun hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Tölvumyndum. Síðan réð ég mig í vinnu hjá Háskólanum í Reykjavík og var þar í fullu starfi í tvö ár og enn lengur í hlutakennslu.“ Árið 1993 stofnaði Stefán, ásamt þeim Ólafi Andra Ragnarssyni og Steinþóri Guðmundssyni, internetþjónustufyrirtækið Margmiðlun. „Við stofnuðum Margmiðlun með það í huga að nýta okkur þessi tækifæri í rafrænum viðskiptum. Við þróuðum meðal annars viðmót fyrir heimabanka og getraunalausnir á netinu og það gekk sæmilega vel. Þá rákum við einnig Heimakringluna, sem var netverslun, en þar vorum við aðeins á undan okkar samtíð og sá rekstur gekk ekki upp og við þurftum að fara í brauðstritið sem var að selja internetþjónustu,“ segir Stefán. „Síðan ákváðum við rétt eftir aldamótin að selja Margmiðlun til að halda áfram þeirri þróun sem varð til innan Betware með stofnun þess árið 1998.“ Stefán er giftur Önnu Ólafíu Sigurðardóttur, starfsmanni á Barnaspítala Hringsins og doktorsnema. Þau hjónin eiga saman þrjú börn, Hrafnkel sem er 29 ára, Arndísi Rós sem er 22 ára og Sigurð Davíð sem er nítján ára. Spurður um áhugamál segir Stefán að hann hafi gaman af útivist og hreyfingu. „Skíðin eru mitt uppáhald. Ég fer líka mikið í ferðalög og reyni að eyða sem mestum tíma uppi í sumarbústað. Einnig er ég að rækta kryddjurtir og salat í bakgarðinum hjá mér í Fossvoginum,“ segir Stefán að lokum.
Mest lesið Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira