Hækkun á húsnæði stærsti áhrifavaldur hækkunar á vísitölu neysluverðs Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 27. nóvember 2013 13:43 Veruleg hækkun á markaðsverði húsnæðis er stærsti áhrifavaldur í hækkun vísitölu neysluverðs í nóvember. Mynd/Vilhelm
Veruleg hækkun á markaðsverði húsnæðis er stærsti áhrifavaldur í hækkun vísitölu neysluverðs í nóvember. Vísitalan hækkaði um 0,36% milli mánaða í nóvember sem er heldur yfir væntingum, segir í frétt Íslandsbanka. Án húsnæðis hækkar vísitalan um 0,20% frá október. Húsnæðisliður í heild hækkar um 0,8% á milli október og nóvember sem vegur til 0,20% hækkunar vísitölunnar og skýrir þar með ríflega helming mánaðarhækkunar vísitölunnar nú. Þar af hækkar reiknuð húsaleiga, sem endurspeglar að mestu þróun markaðsverðs íbúðarhúsnæðis, um 1,4% á milli mánaða (0,19% í vísitölu neysluverðs). Mest er hækkunin á íbúðaverði milli mánaða utan höfuðborgarsvæðisins, 2,5%. Þá hækkar fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu um 1,9% en verð á sérbýli á höfuðborgarsvæði stendur í stað milli mánaða. Matvöruverð breyttist lítið í nóvembermánuði, en þar vó talsverð lækkun á verði ávaxta (-3,1%) og grænmetis (-2,4%) á móti verðhækkun á kjöti (0,9%), brauðmeti (0,6%), mjólkurvörum (0,8%) og sætindum (1,3%). Af öðrum áhrifaþáttum nefnir bankinn að ferðir og flutningar hækkuðu um 0,1% á milli mánaða. Þar vógust á annars vegar 4,8% hækkun á flugfargjöldum til útlanda, og hins vegar 1,1% lækkun á eldsneytisverði. Þá hækkaði liðurinn húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. um 0,6% (0,03% í vísitölunni), föt og skór um 0,3% (0,02% í vísitölu neysluverðs) og verð á heilbrigðisþjónustu hækkaði um 0,5% (0,02% í vísitölunni).
Mest lesið Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira