Mikil pressa og hasar fyrir jólin Haraldur Guðmundsson skrifar 4. desember 2013 17:48 Um tuttugu prósent af heildarsendingum DHL fara í gegnum fyrirtækið í desember. Fréttablaðið/Daníel. „
Okkar stærsta tímabil er nú hafið af fullum þunga. Heildarfjöldi sendinga fer upp um þrjátíu til fjörutíu prósent í þessum mánuði og stærstu dagarnir eru tvöfaldir á við hefðbundna daga,“ segir Atli Freyr Einarsson, framkvæmdastjóri DHL Express á Íslandi. „Þetta er mikil pressa og hasar en þetta eru aðstæður sem við þekkjum og höfum farið í gegnum margsinnis áður.“ Atli segir að stór hluti sendinganna innihaldi vörur innlendra verslana sem fara í sölu fyrir jólin. „Við urðum vör við að jólaösin byrjaði aðeins seinna í ár en venjulega. Hún hefur yfirleitt hafist í lok október eða byrjun nóvember en byrjaði í ár ekki fyrr en í lok nóvember,“ segir Atli og bætir því við að annar stór hluti sendinga innihaldi jólagjafir sem Íslendingar senda út. Atli áætlar að um 18-20 prósent af heildarsendingum ársins fari í gegnum fyrirtækið í desembermánuði. „Í ofanálag hefur orðið sprenging í fjölda sendinga frá erlendum vefverslunum,“ segir Atli. Hann segir að sendingum frá slíkum síðum hafi fjölgað um þrjátíu prósent á þessu ári. Þar er um að ræða sendingar á vörum af ýmsum toga; bókum, bílavarahlutum, fatnaði, húsgögnum, tölvuleikjum og snyrtivörum. „Við höfum þurft að laga okkur að þessu því hver tilraun til afhendingar eykur okkar kostnað. Við höfum til dæmis komið með nýjung sem er fólgin í því að að við sendum sjálfvirkt sms til þeirra sem eiga sendingar hjá okkur þar sem við látum viðkomandi vita að við munum koma sendingunni til þeirra þann daginn.“
Mest lesið Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira