Ólafur Arnalds í Hörpu í kvöld Kjartan Atli Kjartansson skrifar 18. desember 2013 15:09 Ólafur Arnalds kemur fram í Hörpu í kvöld
Ég ætla að bjóða upp á kósý tónleika í Kaldalónssal í Hörpu,“ segir Ólafur Arnalds um tónleikana sína sem verða í kvöld. „Ég mun spila með svokölluðu tríói mínu. Þetta er sama uppsetning og við notum þegar við ferðumst til mjög fjarlægra landa, reyndar mun Arnór Dan söngvari vera með okkur, þannig að þetta verður ekki nákvæmlega eins,“ útskýrir Ólafur. Árið 2013 hefur verið afar viðburðaríkt hjá Ólafi. Hann hefur farið til 23 landa og haldið yfir hundrað tónleika. „Þetta hefur verið gott ár en þreytandi. Lengsta sem við fórum var til Ástralíu, kemst maður eitthvað lengra frá Íslandi en það?“ Auk þess að nota árið í tónleikaferðalag hefur Ólafur varið tíma sínum í að semja kvikmyndatónlist. Til dæmis sér hann um tónlistina í þáttunum Broadchurch, sem hafa vakið mikla athygli á Bretlandi. „Mér finnst ákaflega gaman að vinna með Bretum. Þeir eru ekki eins formfastir og þeir sem maður vinnur með í Hollywood. Bretarnir eru óhræddir við að leyfa manni að taka smá áhættu og veita manni frelsi til að gera það sem maður vill gera, á meðan þeir í Hollywood eru meira að hugsa um áhrif á markhópa,“ útskýrir Ólafur. Önnur sería þáttanna fer í loftið á næsta ári og mun Ólafur halda áfram að semja tónlistina í þá. Hann mun einnig fara í stutta tónleikaferð til Asíu og Ástralíu í febrúar og mars og semja tónlist í kvikmyndir. „En fyrst ætla ég að byrja á því að halda tónleikana í Hörpu í kvöld og taka mér svo jólafrí og halda jólin heima hjá foreldrum mínum í Mosfellsbæ,“ segir Ólafurhttps://midi.is/tonleikar/15/609/
Harmageddon Mest lesið Berum enga ábyrgð á Næs í rassinn Harmageddon Tíu ástæður fyrir því að hugmynd Vigdísar er rosalega vond Harmageddon #FreeTheNipple er byltingarkennt af mörgum ástæðum Harmageddon Logi Bergmann á sviði með Iron Maiden Harmageddon 5 bestu Eurovision-lögin sem unnu ekki undankeppnina á Íslandi Harmageddon Norður-Kórea sést varla frá alþjóðlegu geimstöðinni Harmageddon Vill að forystan axli ábyrgð og segi af sér Harmageddon Pepsi Max: Kontinuum halda toppsætinu Harmageddon Skírður í höfuðið á hljómsveitinni Þeyr Harmageddon Söngvari Creed á ekki efni á mat Harmageddon